141. löggjafarþing — 39. fundur,  21. nóv. 2012.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[19:07]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Tryggva Þór Herbertssyni kærlega fyrir ræðuna, sérstaklega hvað varðar þann hluta sem snýr að þriðju kynslóðar réttindunum. Ég fór yfir það bæði í ræðu minni í gær og eins í andsvörum í dag að það virðist ekki vera nægilega skýrt í hugum þingmanna hvað þriðju kynslóðar réttindi eru og margir átta sig raunverulega ekki á því um hve mikla breytingu er að ræða.

Þriðja kynslóð mannréttinda er mjög lítið þróuð og á sér litla beina stoð í mannréttindasamningum hingað til í heiminum. Þess vegna er mikil umbylting að setja þau inn í frumvarpið. Þau eru mjög ólík réttindum sem heyra til fyrstu og annarrar kynslóðar mannréttinda sem þingmaðurinn fór svo vel yfir varðandi til dæmis atvinnuréttindi og eignarréttindi. Þessi réttindi eru oft og tíðum háð alþjóðlegri samvinnu sem leiðir hugann að því að í greinargerðinni er margoft vísað til þess að það er verið að sækja hitt og þetta í stjórnarskrár annarra ríkja og jafnframt verið að sækja fyrirmyndir til Evrópusambandsins, samanber þessi ákvæði sem snerta sveitarfélögin.

Við þingmaðurinn erum sammála um að það á að yfirfara núverandi stjórnarskrá, þá stjórnarskrá sem er í gildi, en ekki skrifa nýja og því spyr ég: Er ekki allt of langt gengið hjá þeirri ríkisstjórn sem nú er við stjórnvölinn að leggja til svo miklar breytingar að það er raunverulega verið að taka hér upp réttarþróun og stjórnarskrá sem á sér tæplega stoð í öðrum ríkjum? Það er verið að blanda saman stjórnarskrám og alþjóðasáttmálum annarra ríkja í eitt plagg. Er það það sem við þurfum hér eftir bankahrun 2008?