stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Ef við skoðum þau þriðju kynslóðar réttindi sem hafa ratað inn í þessi drög að stjórnarskrá held ég að þetta sé hárrétt sem hv. þingmaður segir, við höfum undirgengist alls konar alþjóðasamninga þar sem inni eru þriðju kynslóðar réttindi. En það er ástæða fyrir því að það er í alþjóðasamningum en ekki í stjórnarskrám ríkja.
Það er í fyrsta lagi til að þynna ekki út stjórnarskrárnar, til að leggja áherslu á hin raunverulegu þungu réttindi, en jafnframt eru hlutir teknir úr stjórnarskrám annarra ríkja. Tökum til dæmis þetta með réttinn til að lifa við mannlega reisn. Það er tekið úr þýsku stjórnarskránni og hefur mjög skýra sögulega skírskotun í Þýskalandi — út af hverju? Þetta var sett inn í þýsku stjórnarskrána, mjög skýrt. Þeir sögulegu atburðir sem þetta vísar til áttu sér stað á millistríðsárunum og í seinni heimsstyrjöldinni. Það hafði mikið tilfinningalegt gildi, sérstaklega á þeim tíma, fyrir Þjóðverja að setja þetta inn. Hvort þetta er aftur á móti praktískt er allt annað mál. Það að taka þetta inn í íslenska stjórnarskrá finnst mér alveg furðulegt og það þynnir út önnur ákvæði stjórnarskrárinnar.
Ég er þeirrar skoðunar að það hafi ekki verið vel hugsað hvernig þriðju kynslóðar réttindum var hrúgað inn í stjórnarskrána. Ég er alfarið á móti því þó að þetta séu allt saman fallegar yfirlýsingar. Við þekkjum ekki afleiðingar þess (Forseti hringir.) að hafa slíka hluti í stjórnarskrá.