141. löggjafarþing — 39. fundur,  21. nóv. 2012.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[19:22]
Horfa

Guðrún Erlingsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skildi ekki alveg hvað virðulegur þingmaður var að fara þegar hann fór að spyrja mig út í brot ríkisstjórnarinnar og hvað það kæmi vinnu við gerð nýrrar stjórnarskrár við. Ég kýs að tjá mig ekki um þau mál sem hún spyr mig um þar sem þetta tengist að mínu mati ekki stjórnarskránni. Ég endaði ræðu mína á því að segja að við ættum að sýna þjóðinni og stjórnarskránni þá virðingu sem hún á skilið og mér finnst þetta ekki vera málefnaleg umræða þannig að ég kýs einfaldlega að svara þessu ekki.

Hvað varðar landsbyggðarkjördæmin og jafnan atkvæðisrétt þá hræðir þetta mig nokkuð, jafn atkvæðisréttur, ef hlutirnir fara eins og þeir fóru þegar kosið var til stjórnlagaþings þar sem einungis tveir eða þrír sem tengdust landsbyggðinni komust inn á stjórnlagaþing, og enn fremur með hliðsjón af því sem hér hefur komið fram að menn þurfa að vera þekktir til að komast inn. Það hræðir mig svolítið í þessum drögum að nýrri stjórnarskrá en að sjálfsögðu eiga menn að skoða þetta með opnum huga og reyna að finna leiðir til að tryggja að allar raddir heyrist.