stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tek undir að það sé mikilvægt í 1. umr. í þessu máli eins og öllum öðrum að sem flest sjónarmið komi fram. Til að þau komi fram þurfa stjórnarliðar að vera í umræðunni líka og það er það sem ég var að kvarta yfir í vor, það var algjör skortur á því að þeir tækju þátt í þeirri umræðu. Ég veit að hv. þingmaður er mér sammála um það.
Varðandi það að kaflaskipta breytingunum hef ég verið á þeirri skoðun að við séum á leið sem við höfum þegar hafið, hún hófst með þjóðfundi og stjórnlaganefnd og því miður þeim mistökum sem urðu í kringum stjórnlagaþingskosningar og síðan skipun stjórnlagaráðsins og óheppilega samsetningu þeirra hvað varðar skiptingu fólks með ólík sjónarmið. Ég nefni í því sambandi að aðeins tveir landsbyggðarfulltrúar voru kjörnir. Ég held að ef við höldum stefnunni og ætlum að gera heildarendurskoðun á þessu sé fullnýtanleg sú vinna sem þegar hefur verið unnin. Ég benti á, og það kannski svarar síðustu spurningu hv. þingmanns um meðfæddan rétt til lífs, að mér finnst margt í mannréttindakaflanum óljóst og óskýrt og þetta ákvæði þar á meðal. Ég held að það þurfi hreinlega meiri tíma. Þessi leiðarljós eru búin að marka svolítið stefnuna um hvert við ætlum að fara en ég held að það sé nauðsynlegt að fara nánar ofan í hvað við erum í raun og veru að segja og hvað það síðan mun þýða bæði í túlkun dómstóla og samfélaginu öllu.
Örstutt um 79. gr., ég hef ekki fyrir framan mig tillögur hv. þingmanns en hef hins vegar margoft heyrt hann fara yfir þær. Ef við ákveðum að við ætlum að endurskoða stjórnarskrána í heild sinni og tökum ákveðna kafla fyrir er það líka einn þáttur sem við þurfum að átta okkur á, þ.e. með hvaða hætti hægt sé að breyta henni. (Forseti hringir.) Ég tek undir að það er áhugaverðast að þegar hún liggur í heild sinni fyrir gangi hún til þjóðarinnar til staðfestingar í þjóðaratkvæðagreiðslu.