stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Alltaf leggst blessaðri lögfræðistéttinni eitthvað til. Fyrst kom efnahagshrunið og lögfræðingar fengu nóg að gera í alls konar dómsmálum sem voru afleiðing af því öllu saman. Við sjáum kannski ekki fyrir endann á því en þeim málum fer nú að fækka. Þá er verið að boða nýja stjórnarskrá sem öllum er ljóst að mun kalla á hrinu af málsóknum og lögfræðilegum álitaefnum eins og við heyrum þegar í þessari umræðu.
Það er ljóst mál að bara sú aðgerð að búa til nýja stjórnarskrá frá grunni, hversu vel sem menn vanda sig við textann að öðru leyti, opnar fyrir möguleikann á margs konar túlkun. Það hefur komið glögglega fram hérna í dag, ekki bara núna í morgun heldur líka í gær þar sem mjög mörg álitaefni voru reifuð. Menn hafa verið að spyrja hvað einstakar greinar þýði og þar fram eftir götunum.
Hér í gær talaði til dæmis mikill áhugamaður um þessa nýju stjórnarskrá, sem taldi plaggið mjög vel skrifað, hv. þm. Guðmundur Steingrímsson, en benti hins vegar á að til að skilja einstakar greinar hefði hann orðið að fara í skýringartextann. Skýringartexti er auðvitað góður og gildur til síns brúks en hann dugar ekki. Af þessu sjáum við að mjög margt þarna er opið fyrir túlkun og leiðir af eðli málsins, þannig er það ævinlega þegar nýr texti af þessu taginu er skrifaður.
Mér sýnist þetta vera augljóst mál og því vil ég spyrja hv. þingmann hvort ekki þurfi að fara rækilega ofan í þennan texta með hliðsjón af þessu og þeim ábendingum sem hafa komið. Ég hef líka áhyggjur af því sama og hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni. Hér komu fram ábendingar frá lögfræðingahópi. Eingöngu var tekið tillit til þess sem má segja að hafi lotið að orðalagi og slíku er sneri að samræmingu gagnvart alþjóðlegum samningum. En til viðbótar komu fram miklar efnislegar ábendingar sem ákveðið var að fara ekki eftir. Er ekki augljóst mál að það hefði verið skynsamlegra að taka tillit til þeirra (Forseti hringir.) með einhverjum hætti til að auðvelda okkur vinnuna í þinginu?