stjórnarskipunarlög.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hennar og fagna sérstaklega þeim orðum hennar að gjalda varhuga við því ákvæði sem tilgreint er í 39. gr. frumvarpsins sem hér liggur fyrir um jöfnun atkvæða og útfærslu þess. Ég vænti þess að eiga mjög gott samstarf við hv. þingmann um að finna einhverja allt aðra útfærslu á því ákvæði ef málið gengur svo langt. Ég vildi gjarnan inna hv. þingmann eftir því hvort hún teldi sig eiga marga skoðanabræður í stjórnarliðinu í því efni. Í mínum huga er þetta eitt stærsta mál sem er tilgreint í tillögunni sem liggur fyrir og varðar landsbyggð og þann jöfnuð sem við gerum kröfu til að ríki í íslensku samfélagi. Frumskilyrði til þess að þegnar landsins séu jafnsettir gagnvart ríkisvaldinu er að þeir hafi sama aðgang að því að koma að ákvarðanatöku sem varðar sameiginlega hagsmuni, sameiginleg mál landsmanna allra.
Því lýsi ég yfir ánægju með afstöðu hv. þingmanns í því efni að hún telur að ákvæðið eins og það er sett hér inn í 39. gr. tryggi ekki þann jöfnuð sem við viljum hafa í þeim efnum. Því spyr ég og ítreka enn og aftur spurningu mína til hv. þingmanns um það hvort hún telji sig ekki eiga marga skoðanabræður í stjórnarmeirihlutanum sem leggur þetta mál fram.