141. löggjafarþing — 40. fundur,  22. nóv. 2012.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[12:08]
Horfa

Jónína Rós Guðmundsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þessa góðu fyrirspurn. Mig langar til að minna á að í þessari grein stendur:

„Lagafrumvarp má ekki samþykkja fyrr en eftir minnst tvær umræður á Alþingi.“

Hér er ekki verið að leggja það til að fækka umræðunum heldur sagt að þær eigi að vera minnst tvær. Ég þakka hv. þingmanni fyrir jákvæð ummæli um vinnubrögð mín og að sjálfsögðu legg ég mikla áherslu á að við slökum ekki á gæðum vinnunnar í tengslum við lagafrumvörp. Við vitum samt að ráðherra mælir oftast fyrir stjórnarfrumvörpum og oftar en ekki er það gert fyrir nánast tómum sal. Kannski má segja að það sé ákveðin kynning á frumvarpinu en kannski er alveg möguleiki að halda sig mjög ákveðið við það að vanda sig við alla vinnu jafnvel þó að umræðum verði fækkað.

Þegar nefndir flytja frumvörp eru ekki nema tvær umræður um málið vegna þess að nefndin hefur þegar kynnt sér það. Hið sama getur átt við þegar mál eru endurflutt, þá er nánast búið að vinna það í nefndinni en einhverra hluta vegna hefur það ekki náð í gegn. Ég held að við verðum að vera svolítið sveigjanleg í þessu. Þess vegna er ég ánægð með að það stendur „minnst“ tvær umræður á Alþingi og tel að þetta sé ekki hættulegt ákvæði.