141. löggjafarþing — 40. fundur,  22. nóv. 2012.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[12:11]
Horfa

Jónína Rós Guðmundsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni. Því miður höfum við stundum verið þannig stödd að hér hafa lög verið afgreidd í allt of miklum asa síðla nætur og það er ekki til neinnar fyrirmyndar.

Auðvitað viljum við, ég held öll hér inni, virkilega vanda okkur. Við viljum leggja okkur fram um að þau frumvörp sem hér verða að lögum séu vönduð og búið að taka tillit til allra sjónarmiða. Lagasetning er ekkert grín og við verðum virkilega að vanda okkur við hana. Það getur alveg verið að það sé rétt hjá þingmanninum að þarna sé einhver ákveðinn freistnivandi, hann er því miður alls staðar í kringum okkur. Eins og ég segi verðum við að vona að þetta heimildarákvæði verði hægt að nýta í þeim tilvikum sem ég nefndi áðan, en að í stórum og erfiðum málum (Forseti hringir.) þar sem við erum að byrja fari að sjálfsögðu fram þrjár umræður.