stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Við tökumst núna á við erfiðasta og mikilvægasta viðfangsefni sem við höfum tekist á við á þessu kjörtímabili og þó lengra sé leitað. Ég vísa auðvitað til þess að stjórnarskráin er slíkt grundvallarplagg að við hljótum alltaf að horfa til þess verkefnis með mikilli auðmýkt og mikilli vissu um að við verðum að vanda okkur og við verðum að komast að niðurstöðu sem við erum sannfærð um sem flest í hjarta okkar að sé hin réttasta við þær aðstæður sem við vinnum að þessum málum.
Stjórnarskrá okkar hefur verið við lýði allan lýðveldistímann í meginatriðum með breytingum og hefur reynst vel. Ákvæðum stjórnarskrár er erfiðara að breyta en almennum lögum og þannig á það að vera. Það þarf að vera tiltekin festa í þeirri lagasetningu. Sú breyting sem við kunnum að gera á núverandi stjórnarskrá, hvort sem við leggjum til grundvallar þetta plagg sem hér er til umræðu eða förum aðrar leiðir, verður að vera þannig úr garði gert að okkur sé ljóst að hún verður kjölfestan í okkar stjórnskipun um töluverðan tíma. Öllum er líka ljóst að stjórnarskráin er lifandi plagg í þeim skilningi að hún þarf að taka tilteknum breytingum þegar aðstæður breytast. En þær breytingar mega hvorki vera of hraðar né of róttækar því að það gæti í sjálfu sér skapað óvissu. Stjórnarskránni er ætlað að draga úr óvissu í stjórnskipun okkar og skapa tiltekna vissu fyrir borgara landsins í daglegu lífi.
Ég tek undir og fagna því að þessi almenna umræða sé komin á það skrið sem hún er þó komin á núna á Alþingi. Ég vil líka vekja athygli á því að hér hafa hér um bil allir, a.m.k. allir þeir sem ég hef hlustað á, fagnað því að málefnaleg umræða sé hafin. Af hverju fagna menn því? Vegna þess að þá eru þeir að segja að málefnaleg umræða eigi að leiða til einhvers. Þær breytingar sem menn kalla eftir, sú vörn sem menn fara í gagnvart einstökum málum eins og gengur og gerist — allt er þetta auðvitað til þess fallið að við reynum að fara gagnrýnið yfir einstök atriði og útiloka ekki neinar breytingar, við útilokum hvorki að gera róttækar breytingar frá frumvarpinu né að við þurfum ekki að gera slíkar breytingar.
Mér hefur hins vegar fundist svolítið óþægilegt að jafnframt því að menn fagna því að málefnaleg umræða sé hafin og hún sé mjög mikilvæg hafa viðbrögðin frá þeim sem tala sérstaklega fyrir þessu frumvarpi verið þannig að það sækir dálítill uggur að mér um að í raun sé ekki mikill áhugi á því að fara nákvæmlega ofan í þá gagnrýni sem hefur komið fram í umræðunni. Ég vona auðvitað að ég hafi á röngu að standa og það mat mitt sé ekki rétt.
Gallinn við umræðuna núna er að við erum bara að klóra yfirborðið, við ræðum í hálfgerðum andarteppustíl á 15 mínútum þetta mikilvægasta þingplagg sem fyrir sjónir okkar hefur komið á kjörtímabilinu. Þetta þurfum við að hafa í huga og nefndin þarf að hafa í huga að þær ábendingar sem fram hafa komið í umræðunni eru þessum takmörkunum háðar.
Ég ætla að koma strax að máli sem ég tel að skipti gríðarlega miklu máli. Ég segi ekki að það skipti öllu máli, en miklu. Hér er ég að víkja að III. kaflanum sem lýtur að Alþingi og sérstaklega 39. gr. sem fjallar um alþingiskosningar. Menn hafa sagt sem svo að það sé sjálfgefið að vægi atkvæða hvar sem er á landinu eigi alls staðar að vera jafnt. Ég get ekki tekið undir það. Ég tel að það hafi verið megingalli á allri umræðu um kosningalöggjöf og kjördæmaskipan í landinu hversu þröngt sjónarhornið hefur verið.
Það er ekki svo að við Íslendingar einir höfum rætt um þessa hluti, margar aðrar þjóðir hafa ekki síður fjallað um spurninguna um jafnt vægi atkvæða. Breska þingið fór rækilega yfir þessi mál fyrir nokkrum árum og var auðvitað fullt tilefni til að gera það á því þingi. Þar eru einmenningskjördæmi. Þar getur teoretískt komið upp sú staða að ef einn flokkur fær flest atkvæði, þó ekki væri nema þriðjung atkvæða í öllum kjördæmum, gæti sá flokkur fengið alla þingmennina. Það eru ekki mjög miklar líkur á því en þessi staða getur komið upp. Við sjáum að með einmenningskjördæmafyrirkomulaginu í Bretlandi hefur jafnvel meiri hluta þingmanna verið kosinn með talsverðum minni hluta þingsins. Þess vegna var eðlilegt að þeir spyrðu þessara spurninga.
Niðurstaða þeirrar nefndar sem allir stjórnmálaflokkarnir stóðu að var sú að þegar fjallað væri um kjördæmaskipan og kosningafyrirkomulag þyrfti að horfa til fleiri átta en bara spurningarinnar um jafnt vægi atkvæða. Til dæmis þyrfti að spyrja hvernig við getum viðhaft þá kjördæmaskipan sem treystir sem best hið lýðræðislega fyrirkomulag sem felst í því að þingmenn og kjósendur eigi sem greiðastan aðgang hver að öðrum. Það er ljóst að landið sem eitt kjördæmi er ekki líklegt til að stuðla að því. Mjög stór kjördæmi eru ekki líkleg til að stuðla að því.
Einnig vöknuðu spurningar eins og hvaða fyrirkomulag væri líklegast til að skila meirihlutaríkisstjórn. Við vitum að hlutfallskosning með engum þröskuldum, eins og við erum þó með í okkar fyrirkomulagi, mun ekki stuðla að því. Einmenningskjördæmi stuðla að því, það vitum við. Þá þurfa menn að vega þessa hagsmuni saman og bera saman við kröfuna um jafnt vægi atkvæða. Út úr því kemur ekkert klippt og skorið um að vægi atkvæða eigi að vera jafnt eða að menn vilji endilega hafa einmenningskjördæmi til að tryggja meirihlutastjórn. Möguleikinn getur verið sá að reyna, t.d. á grundvelli hlutfallskosningarinnar sem við erum með núna með þröskuldum, að þróa kerfið í átt að jafnara vægi atkvæða og síðan þeim öðrum þáttum sem ég hef gert að umtalsefni. Þetta held ég að skipti miklu máli. Þetta varð í raun niðurstaðan árið 2003 þegar núverandi kjördæmaskipan var tekin upp. Þá sögðu menn: Til að geta haldið í við þessi sjónarmið — þau sem ég var að gera að umtalsefni — þurfum við að sætta okkur við að hafa kjördæmin stærri og að skekkjan í atkvæðavæginu geti numið allt að einum á móti tveimur. Ég held að það sé býsna viðunandi niðurstaða að þessu leytinu til.
Það er rétt að vísað hefur verið til þess að í þeirri ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu eða skoðanakönnun sem fór fram á þessu hausti var spurt um afstöðu fólks til jafns vægis atkvæða. Það vekur athygli mína að það voru þó ekki nema 57% sem vildu jafnt vægi atkvæða. Í því ljósi segi ég: Okkur ber að sjálfsögðu, ef við viljum horfa til þessarar atkvæðagreiðslu, að horfa líka til þess talsvert stóra minni hluta, 43% þjóðarinnar, sem hafnaði þessari leið. Annað er ósanngjarnt. Annað er óbilgirni. Annað er ofríki. Ef við ætlum ekki að horfa til viðhorfa 43% þjóðarinnar sem ofan í kaupið komu augljóslega mest af landsbyggðinni, eins og við sáum af skiptingunni á bak við þetta, ætlum við að beita minni hlutann sem á landsbyggðinni býr ofríki meiri hlutans. Það er mjög háskalegt.
Jafnvel þótt við vildum vera trú hugmyndinni um jafnt vægi atkvæða og taka ekki tillit til þeirra sjónarmiða sem ég hef gert að umtalsefni með málefnalegum hætti vil ég segja að sú leið sem farin er í þessu frumvarpi er algerlega útilokuð, alveg fráleit, alveg afleit. Gert er ráð fyrir því að kosið sé með tvennum hætti: Annars vegar sé kosið úr kjördæmunum sem geta verið allt á bilinu eitt kjördæmi, landið eitt kjördæmi, upp í að vera átta kjördæmi. Það getur verið seinni tíma ákvörðun hvaða aðferð menn hafa á því. Ég er algerlega á móti því, ég held að festa eigi þetta í stjórnarskipunarlögin eins og það er gert núna. Núna er sagt: 6 kjördæmi hið minnsta. Við eigum að festa þetta. Við eigum ekki að opna þann möguleika að pólitískur meiri hluti geti breytt þessu með einföldum hætti og gert til dæmis landið að einu kjördæmi. Það er algerlega útilokuð aðferðafræði.
Gert er ráð fyrir því að úr þessum kjördæmum komi 30 þingmenn. Þar af hygg ég að sex kæmu úr mínu kjördæmi og eitthvað fleiri úr öðrum landsbyggðarkjördæmum sem stærri eru. Alls 30 þingmenn. Síðan er opnað á að hafa sérstakan landslista þar sem landið er í raun eitt kjördæmi og af honum á að kjósa 33 þingmenn. Þetta hljómar allt vel og menn sveifla um sig orðaleppum eins og þeim að auðvitað muni allir á þessum landslista horfa til landsins alls og axla ábyrgð gagnvart landsbyggðinni ekkert síður en höfuðborgarsvæðinu þegar þeir koma á þing. Óskaplega eru þetta nú falleg orð en lítil huggun harmi gegn vegna þess að vitaskuld verða þeir sem eiga pólitískt líf sitt undir því að fá kjör af þessum landslista að horfa til þess hvar pólitískir hagsmunir þeirra liggja í raun. Á þetta hefur Þóroddur Bjarnason, prófessor á Akureyri, bent í mjög athyglisverðri grein og með viðurkenndri aðferðafræði hefur hann leitt að því líkum að þessir 33 þingmenn muni koma af höfuðborgarsvæðinu, eða eins og hann segir í grein sinni, með leyfi virðulegs forseta:
„Þannig væri þeim landskjörna þingmanni eflaust voðinn vís sem héldi fram sjónarmiðum sem væru verulega óvinsæl á höfuðborgarsvæðinu. […] Langflestir landskjörnir þingmenn yrðu því íbúar höfuðborgarsvæðisins eða a.m.k. […] meiri hluta kjósenda á höfuðborgarsvæðinu þóknanleg.“
Þingmenn sem kæmu af landsbyggðinni og töluðu til dæmis fyrst og fremst fyrir sjónarmiðum sem greinilega eru minnihlutasjónarmið í ýmsum efnum, svo sem húshitunarmálum eða samgöngubótum til afskekktari svæða, ættu sjálfsagt ekki mikla möguleika nema menn færu að taka upp á því af vorkunnsemi að kjósa þá sérstaklega. Hættan er auðvitað sú eins og menn hafa bent á að það væru fyrst og fremst skoðanalausar druslur á landsbyggðinni sem gætu hugsanlega fengið stuðninginn. Við sáum hvernig þetta virkaði í kosningunum til stjórnlagaþings, sem voru reyndar ólöglegar. Tveir fulltrúar stjórnlagaráðs komu af landsbyggðinni. Það mótaði því miður mjög tillögur ráðsins og þýðir ekkert að horfa fram hjá því.
Ég segi í fyrsta lagi: Það eru rök fyrir því að horfa í fleiri áttir en bara á spurninguna um jöfnun á vægi atkvæða. Í öðru lagi: Þetta er vond leið sem er lögð til í 39. gr. Ég fagna því að þessi sjónarmið hafa komið fram víðar en hjá mér.
Ég vil einnig koma aðeins inn á — og sýnir nú hvað maður þarf að tala í miklum andarteppustíl — kaflann sem lýtur að Alþingi. Hann finnst mér vera býsna vanbúinn. Nei, ég ætla að sleppa þessu og fara frekar í stjórnarmyndunarhlutann því það er býsna brýnt mál. Þar er komið að hlutverki forseta Íslands. Ég verð að segja að mér finnst það mjög ankannalegt í 90. gr. þar sem gert er ráð fyrir því að forseti Íslands geri tillögu til þingsins um forsætisráðherra. Þarna er forsetinn kominn með beint íhlutunarvald um myndun ríkisstjórnar. Þannig á það auðvitað ekki að vera. Ég veit að kaflinn í núgildandi stjórnarskrá um forsetann er mjög gallaður en þarna er hins vegar ekki nægilega bætt úr að mínu mati.
Þetta kemur líka fram í frægri ræðu forseta Íslands 1. október í fyrra. Þar kemur hann inn á þessi mál og vekur athygli á því að með tillögum stjórnlagaráðs taki hlutverk forsetans við myndun ríkisstjórnar miklum breytingum, það verður mun sjálfstæðara. Þar segir, með leyfi virðulegs forseta:
„Í stað þess að formenn stjórnmálaflokka móti valkosti forsetans eins og tíðkast hefur frá lýðveldisstofnun mundi forseti sjálfur hafa frumkvæði að viðræðum við einstaka þingmenn og þingflokka. Hann gerir síðan tillögur til Alþingis um forsætisráðherra og er þá ekki bundinn af því að velja þingmann til þess embættis. Verði fyrsta tillaga forsetans ekki samþykkt hefur hann að nýju viðræður við þingmenn og þingflokka.
Í stað þess forustuhlutverks sem formenn flokka hafa í áratugi haft við myndun ríkisstjórna fela tillögur stjórnlagaráðs í sér nýja skipan þar sem beinar viðræður forsetans við þingmenn yrðu afgerandi.“
Þetta er rétt túlkun forsetans hvað sem hver segir. Það sjáum við með því að lesa bókstaflega 90. gr. um stjórnarmyndunarviðræðurnar, þar kemur þetta mjög glögglega fram. Ég tel að þarna sé mjög sveigt af leið þess þingræðis sem við viljum hafa í heiðri. Auðvitað er eðlilegast að fyrirkomulagið sé þannig að það sé á valdi hinna lýðræðislega kjörnu þingmanna að reyna að koma sér saman um meirihlutastjórn. Það kann að vera, eins og er gert í dag samkvæmt núverandi stjórnarskrá, að forsetinn kunni að hafa þar atbeina ef ekki gengur saman með myndun ríkisstjórna en með þessum hætti (Forseti hringir.) fara menn algerar villigötur.