141. löggjafarþing — 40. fundur,  22. nóv. 2012.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[12:34]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér er alveg ljóst að þetta er 1. umr. þessa máls. Ég talaði í 15 mínútur og gat á handahlaupum farið yfir tvö efnisatriði sem mér lágu sérstaklega mikið á hjarta. Ég hefði getað talað um mjög mörg önnur mál líka. Það er ekki þannig, hv. þingmaður, að það sé einhver ágreiningur um kosningarréttinn og við getum auðvitað rætt á einhverri sögustund um það hvað gerðist hér fyrir 100 árum, en það finnst mér ekki vera innlegg í þessa umræðu.

Það sem ég er einfaldlega að reyna að árétta í þessu er það að þessi spurning um kosningarréttinn og vægi atkvæða er flóknari og margbrotnari heldur en mér hefur fundist að umræðan hafi almennt endurspeglað, hvort heldur þjóðfélagsumræðan eða umræðan hér á Alþingi. Ég vildi þess vegna vekja athygli á þessu og líka á því að aðrar þjóðir sem eru að velta þessum hlutum fyrir sér, til að mynda í Bretlandi þar sem kannski 30, 40% þjóðarinnar kýs í raun og veru meiri hluta stjórnarinnar. Aðrar þjóðir eru að velta þessu máli (Forseti hringir.) fyrir sér á miklu víðtækari hátt en við höfum verið að gera.