stjórnarskipunarlög.
Herra forseti. Það fer að líða að lokum þessarar 1. umr. um tillögur stjórnlagaráðs sem meiri hluti hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar flytur, þó með nokkrum breytingum sem nokkuð hafa verið ræddar. Þetta hefur verið góð og málefnaleg umræða, þó með einstaka undantekningum. Mér þótti dálítið sárt að þegar ég sagðist óttast breytingarnar sem væru svo viðamiklar dró hv. þm. Róbert Marshall þá ályktun að ég vildi engar breytingar og að sjálfstæðismenn almennt óttuðust allar breytingar. Það fannst mér ekki sanngjarnt vegna þess að ég vil nefnilega breytingar. Þær breytingar sem ég vil sjá gerðar þurfa hins vegar að vera útreiknaðar og áhrifin metin þannig að menn viti hvaða afleiðingar þær muni hafa.
Á það finnst mér skorta og þess vegna er ég mjög uggandi ef þetta yrði samþykkt, eins og menn hafa jafnvel sagt, með naumum meiri hluta. Ég vona að svo verði ekki, ég vona að menn hlusti á rök og varnaðarorð og síðan náist sú breyting sem menn geta horft framan í án þess að verða skelfingu lostnir við tilhugsunina um hvað getur gerst.
Þótt bara einu atriði yrði breytt í mannréttindakafla um öryrkja eru forsendur öryrkjadómsins fallnar og þá gildir fordæmi hans ekkert lengur. Eitt lítið atriði þar gæti þýtt allt önnur réttindi öryrkja. Þá þurfa að falla hæstaréttardómar og menn vita hvaða tíma það tekur. Þeir þurfa að átta sig á nýju umhverfi þannig að gjörbreyting á stjórnarskrá getur þýtt lagalega óvissu í 20, 30, 40 ár. Það er ekki gott og er tæpast æskilegt. Þess vegna þurfum við að vanda okkur vel í þessari vinnu. Ég sakna þess dálítið að hv. stjórnarliðar taki ekki þátt í umræðunni vegna þess að það er einmitt mjög mikilvægt að geta spurt þá vissra spurninga.
Ég hef nefnt hérna mörgum sinnum að uppbygging stjórnarskrár er að mínu mati mannréttindamál fyrst og fremst, þetta er heimspekilegt vandamál. Ég hef talað um að skipta mannréttindunum í I. og II. kafla, þ.e. mannréttindi sem vernda mig fyrir öðru fólki, þar á meðal ríkinu því að það er ekkert annað en samansafn fólks, og síðan eru mannréttindi annarrar gráðu þar sem ég á kröfu á annað fólk, t.d. varðandi framfærslu. Réttur barns til framfærslu er annarrar gráðu mannréttindi þar sem barnið á rétt á framfærslu og þau mannréttindi hljóta alltaf að vera háð efnahagsástandi. Þau eru önnur í Sómalíu en á Íslandi.
Svo hef ég rætt mörgum sinnum að ég vildi gjarnan, og ég hef ekki heyrt neinn mann andmæla því, að þjóðin greiddi atkvæði með bindandi hætti um sína eigin stjórnarskrá. Við verðum að finna einhverja leið til þess. Ég hef bent á eina leið og ég vil að nefndin skoði hana mjög vandlega. Þar eru þröskuldar sem þarf að vega og meta. Eru þeir of háir? Þá yrði mjög erfitt að breyta stjórnarskránni, allt of erfitt. Eru þeir of lágir? Það má heldur ekki því að þá er stjórnarskránni breytt eins og vindarnir blása. Þarna þarf að finna hinn gullna meðalveg og ég skora á hv. nefnd að fjalla um hugmyndir mínar um breytingu á 79. gr. og jafnvel senda þær til Feneyjanefndarinnar ásamt með öðrum plöggum og spyrja hana hvað væri æskilegt að hafa þessa þröskulda háa eða lága.
Það eru ýmis atriði sem ég hef bent á. Ég hef bent á að í átta greinum sé gert ráð fyrir að einhver tryggi eitthvað, t.d. skal friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu tryggt. Hver á að tryggja? Er það ekki stjórnarskráin? Ætti þá ekki að standa: Einkalíf, heimili og fjölskylda okkar eru friðhelg? Þá liggur það fyrir. Þá stendur það í stjórnarskránni klippt og skorið. Þetta hafa menn ekki tekið með í þessum breytingum þó að ég hafi lagt fram þessa breytingartillögu.
Svo er skrúðmælgi sem ég vara við og bið menn endilega að forðast, t.d. að allir hafi meðfæddan rétt til lífs. Meðfætt er voða fallegt en það útilokar þá sem eru ófæddir, rétt fyrir fæðingu. Ég vil að menn forðist alla skrúðmælgi því að hún eyðileggur meininguna.
Því miður kemst ég ekki öllu lengra en það var heilmikið eftir. Ég átti eftir að ræða um ríkisborgararétt. Hann er stórhættulegur. Hjón sem hafa hvort sitt ríkisfangið geta eignast börn sem eru með tvöfaldan ríkisborgararétt. Ef þau hitta börn sem eru með tvöfaldan ríkisborgararétt er kominn fjórfaldur og síðan áttfaldur og þar á eftir sextánfaldur. Ég var með tillögu um að breyta þessu þannig að ríkisborgararéttur yrði (Forseti hringir.) valinn við 18 ára aldur.