141. löggjafarþing — 40. fundur, 22. nóv. 2012.
stjórnarskipunarlög.
415. mál
Virðulegi forseti. Ég hef marglýst því yfir að við erum að fara í ítarlega umræðu. Ég hef marglýst því yfir að þingið tekur auðvitað hina endanlegu ákvörðun.
Nei, ég er ekki að segja að það eigi ekki að hlusta á fræðimenn. Ég er hins vegar að vekja athygli á því að skoðanir fræðimanna eru líka margar og það er okkar í þinginu að ákveða og vega og meta og bera ábyrgðina á því.