fjögurra ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011--2014.
Virðulegi forseti. Sú tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára fjarskiptaáætlun er heilmikið mál og ætti að vekja mikla umræðu. Það vekur því spurningar í mínum huga að ekki hafi margir séð ástæðu til að kveðja sér hljóðs í umræðunni. Ég hef hins vegar gert það í flestum þeim umræðum sem settar hafa verið á í tengslum við þessa þingsályktunartillögu, bæði á þessu þingi og í fyrra.
Í rauninni var margt ágætlega sagt í ræðu hv. þingmanns og formanns umhverfis- og samgöngunefndar og framsögumanns málsins sem áréttað er með sambærilegum hætti í nefndaráliti meiri hlutans.
Ég ætla að lesa, með leyfi forseta, það sem mér finnst skipta miklu máli í þessu sambandi:
„Nauðsynlegt er að tryggja örugg fjarskipti á öllu landinu. Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að huga sérstaklega að stöðu fjarskiptamála í dreifbýli landsins og telur brýnt að ljúka grunntengingum um land allt og tryggja íbúum landsins nauðsynlega fjarskiptaþjónustu. Öflug fjarskipti og góðar tengingar eru ekki síður mikilvæg fyrir íbúa og fyrirtæki í dreifbýli en þéttbýlinu og eru oft forsenda þess að búseta, nám og rekstur fyrirtækja geti gengið í dreifbýlinu. Þeir sem búa utan þéttbýlis þurfa oft að leita lengra eftir þjónustu en íbúar í þéttbýli og því mikilvægt að tryggja möguleika þeirra til að eiga samskipti við þjónustuaðila, stjórnvöld og stjórnsýslu með rafrænum og öruggum hætti.“
Ég gæti tekið undir hvern stafkrók í þessum texta. Ég held að það sé nefnilega kjarni málsins. Við vitum að fjarskiptatækni, tölvutækni, símatækni og skyldir hlutir hafa verið að breytast mjög hratt. Þau markmið sem við settum okkur fyrir fjórum árum og átta árum eru í rauninni úrelt markmið. Ég kann nú varla skammstafanir á þessum fjarskiptatengingum, ISDN, ADSL, sem menn settu sem markmið á sínum tíma, og við vorum varla búin að samþykkja það á Alþingi þegar hluti af þeirri tækni var orðinn úreltur og markmiðin sem við höfðum sett okkur voru markmið gærdagsins. Það er það sem einkennir þann markað að hann breytist svo hratt að við sjáum ekki fram í tímann. Snjallsímar voru óþekkt fyrirbæri fyrir fáeinum árum og það eru bara gamlir íhaldsmenn sem eiga nú orðið ekki snjallsíma, sem segir okkur það að við þurfum að vera mjög á varðbergi og mjög vel meðvituð um þá breytingu sem er að eiga sér stað.
Ég ætla að taka annað dæmi. Menn reyna að byggja upp atvinnufyrirtæki á landsbyggðinni og setja upp tölvukerfi sín í samræmi við það. Það er varla til það auma atvinnufyrirtæki sem ekki þarf á miklum fjarskiptum að halda. Menn geta ekki borgað reikninga sína nema hafa greiðan aðgang að tölvukerfum og netkerfum landsins. Þegar kerfin uppfylla ekki skilyrðin sem nútímaviðskipti kveða á um lenda menn hreinlega í vandræðum. Menn geta ekki borgað reikningana af því að tölvukerfi og viðmót í tölvunum í bönkunum er orðið svo þróað að gömlu línurnar, hvort sem það var ISDN eða gamli koparinn að ég tali nú ekki um loftnetstengingarnar, ráða ekki við þetta. Svona getum við haldið áfram. Það segir okkur að við þurfum að vera mjög vel á varðbergi.
Ég studdi mjög uppbyggingu fjarskiptasjóðs á sínum tíma og tel að það hafi verið mjög gott þegar Síminn var seldur á sínum tíma að leggja verulega fjármuni inn í þann sjóð af söluverðmæti Símans til að fara í þá uppbyggingu úti um landsbyggðina. En síðan þróast málin og menn þurfa að halda áfram. Það er auðvitað það sem við þurfum að marka okkur stefnu um í fjarskiptaáætlun. Ég hef velt því upp í umræðunni hvort fyrirkomulagið á fjarskiptaáætlunum eins og þær hafa verið núna og eru í þessum búningi séu nægilega skýrar.
Svo ég svissi yfir í næstu umræðu er sagt í nefndaráliti meiri hlutans með 12 ára fjarskiptaáætluninni að fjögurra ára fjarskiptaáætlunin sé framkvæmdaáætlun. Mér finnst tillaga til fjarskiptaáætlunar ekki ná því markmiði. Hún er ekki raunveruleg framkvæmdaáætlun í þeim skilningi sem við þekkjum til dæmis í samgönguáætlunum þar sem við sjáum hvaða vegi menn ætla að leggja á næstu fjórum árum, hvað menn ætla að gera í hafnargerð á næstu fjórum árum og hvað menn ætla að gera í flugsamgöngum á næstu fjórum árum.
Í b-lið í 1. kafla er til dæmis sagt, með leyfi virðulegs forseta:
„Samstarfsvettvangur hagsmunaaðila móti tillögur að úrbótum sem greiði fyrir endurnýjun og uppbyggingu ljósleiðarastofn- og aðgangsneta um land allt.“
Ég skal játa að ég veit ekki hver þessi samstarfsvettvangur hagsmunaaðila er. Hverjir eru hagsmunaaðilarnir? Eru það fyrirtækin sem eru fjarskiptafyrirtæki? Eru það sveitarfélög? Er það almennt atvinnulíf eða aðrir notendur? Mér er það ekki ljóst. Látum það liggja á milli hluta. En hefði ekki verið eðlilegra að slíkar tillögur lægju fyrir í fjarskiptaáætlun eins og þessari en ekki bara að fjarskiptaáætlunin, sem sögð er vera framkvæmdaáætlun, mælti fyrir um að samstarfsvettvangur hagsmunaaðila, þessi óskilgreindi vettvangur að öðru leyti, ætti að gera tillögur að úrbótum sem greiddu fyrir endurnýjun og uppbyggingu ljósleiðarastofn- og aðgangsneta um land allt? Er það ekki einmitt það sem við ættum að sjá í fjarskiptaáætluninni? Þá vissum við til dæmis hvort menn ætluðu að laga GSM-sambandið út í dreifðar byggðir, hvort menn ætluðu að taka alla hina blindu kafla úr GSM-sambandinu á þjóðvegakerfinu, hvort menn ætluðu að fara í það að efla tölvutengingarnar í dreifbýlinu, eins og nefndarálit meiri hlutans mælir ekki beinlínis fyrir um en þar er þó almenn árétting á sjónarmiði sem ég geri ráð fyrir að eigi mikinn meiri hluta stuðning í landinu.
Tillögunni fylgir ekki kostnaðaráætlun en hins vegar er gert ráð fyrir að fé til að framkvæma þessi verkefni verði sótt í fjarskiptasjóð. Hvað er um mikla fjármuni að ræða? Hvað hefur fjarskiptasjóður yfir miklum fjármunum að ráða til að fara í þessi verkefni?
Ég ætla bara að taka eitt lítið dæmi. Ég spurði hæstv. innanríkisráðherra að því síðastliðið vor og fékk því svarað núna á liðnu sumri hvaða áform væru uppi um að bæta GSM-samband á þjóðvegakerfinu annars vegar um Ísafjarðardjúp og hins vegar á Vestfjarðavegi 60. Svarið var á margan hátt áhugavert en niðurstaðan var sú að engin áform væru um það. Fjarskiptasamband á þessari helstu þjóðleið inn á tvo helstu og stærstu þéttbýliskjarna Vestfjarða, þ.e. norðanverða Vestfirði og sunnanverða Vestfirði, eiga að vera eins og þau eru í dag, algjörlega óviðunandi.
Sú var tíðin að við áttum kerfi sem kallað var NMT-kerfi sem var nú að mörgu leyti gallað en þótti mikil framför á sínum tíma og mörg okkar nýttu það. Það samband var víðast hvar um landið. Síðan lagðist það af vegna þess að tæknin gerði það að verkum að það voru varla nema einhverjir sérvitringar, þingmenn landsbyggðarinnar og nokkrir flutningabílstjórar sem notuðu það kerfi og var ekki hægt að reka það lengur. Þá komu upp gloppur í GSM-kerfinu sem eru auðvitað algjörlega óviðunandi. Ég er ekki að segja að GSM-kerfi er ekki til þægindaauka, það er líka öryggiskerfi vegna þess að menn hafa ekki upp á annað að hlaupa.
Tetra-kerfið, sem nær um land allt og lögreglan og björgunarsveitir nota, er kerfi sem almenningur hefur ekki aðgang að og getur því ekki bjargað sér með. Almenningur er með GSM-símasamband og þess vegna hefði ég kosið að framkvæmdaáætlunin, sem svo er kölluð, væri skýrari en þarna er kveðið á um. Það er líka talað um það í d-lið 1. kafla að fjarskiptasjóður vinni stöðumat, þarfagreiningu og forgangsröðun núverandi og mögulegra verkefna. Ég hefði talið að sú forgangsröðun væri það sem hefði átt að liggja fyrir. Hún hefði átt að liggja til grundvallar einhvers konar framkvæmdaáætlun um þessi mál þannig að við vissum hvenær kæmi að því að laga tölvusambandið í Árneshreppi, hvenær kæmi að því að laga GSM-samband í Ísafjarðardjúpi eða hvenær menn ætluðu að taka burtu alla blindu kaflana á þjóðvegakerfinu hvað þetta áhrærði í GSM-sambandinu, sem er mjög bagalegt eins og við vitum, svo ekki sé nú talað um stóra verkefnið sem er að hafa alvörufjarskipti fyrir sjómennina okkar. Það hefur að vísu lagast, GSM-sambandið nær víðar og sjómenn eru með annars konar fjarskipti líka í mörgum tilvikum en það vantar hins vegar heilmikið upp á það enn þá.
Ég hefði kosið það að hefði verið lagt til grundvallar í þessari vinnu að við sæjum hvaða áform stjórnvöld hefðu uppi um uppbyggingu á þessu sviði. Ég hef því miður ekki haft fyrir því að skoða möguleika fjarskiptasjóðs til að fara í svona framkvæmdir. Ég óttast að þeir séu ekki allt of miklir en til að auka mér leti vil ég spyrja hv. þm. Guðfríði Lilju Grétarsdóttur hvort hún hafi á takteinum upplýsingar um í hvaða færum fjarskiptasjóðurinn er til að fara í þau verkefni og mjög mörg önnur. Það kann að hljóma svolítið eins og ég sé að klaga og kvarta og ég er að því, ég tel að þetta sé eitt af þeim verkefnum sem er mjög mikilvægt að fara í.
Ég er alveg opinn fyrir því að menn skoði það að styrkja tekjustofna fjarskiptasjóðs með einhverjum hætti vegna þess að hann þarf að vera virkur. Ég tel ekkert óeðlilegt við að hann sé notaður til að spýta í varðandi uppbygginguna sem ekki verður gerð á markaðslegum forsendum. Stór hluti af íbúum landsins býr við þau fjarskipti sem ég hef verið að kalla eftir, án þess að neinn opinber atbeini komi að því. Það er hins vegar ákveðinn hluti landsins sem ekki býr við þau fjarskipti og það er ekki bara einkamál þeirra sem við það býr heldur líka þeirra sem eiga viðskipti við þessi svæði og líka þeirra sem leggja sína leið þangað.
Það er að vísu búið að bæta aðeins úr GSM-sambandinu norður í Árneshreppi, svo ég taki það sem dæmi. Ég kom þar einu sinni og hitti algjörlega furðu lostinn ferðamann sem hafði keyrt frá Hólmavík og norður í Árneshrepp. Það hvarflaði ekki annað að honum en að þegar hann kæmi norður í Árneshrepp gæti hann dregið upp GSM-símann sinn og gert það sem hann þurfti að gera, hringt eða hvaðeina sem hann ætlaði að gera, og hann trúði ekki sínum eigin eyrum þegar hann áttaði sig á því að hann var utan GSM-sambands, að hann var kominn í það sem við áhugamenn um gönguferðir á Hornströndum köllum stundum GSM-frelsið. Það rifja ég bara upp sem dæmi um að það er hinn venjulegi lífsmáti okkar nútímamanna að nýta sér þessa hluti. Ég hef nefnt GSM-sambandið og það lýtur líka að fleiri þáttum í daglegu lífi okkar en tölvusamskiptin eru enn þá mikilvægari, þau eru forsendan fyrir því að menn geti lifað nútímalegu lífi úti um byggðir landsins þegar kemur að viðskiptum, námi og öðru slíku.
Þess vegna hefði ég kosið að við endurskoðuðum fyrirkomulag fjarskiptaáætlunarinnar og hefðum það skýrara, ekki bara með almennri markaðssetningu, ekki bara með því að fela einhverjum að búa til einhverja forgangsröðun nú þegar áætlunin er hálfnuð heldur að þessir hlutir lægju fyrir þannig að við sæjum umfangið, áttuðum okkur á kostnaðinum og gerðum okkur síðan grein fyrir því hvað er raunhæft í uppbyggingu á þessum mikilvægu innviðum samfélags okkar.