vernd og orkunýting landsvæða.
Herra forseti. Ég held áfram með ræðu mína sem ég flutti að megninu til fyrir hádegishlé en á þó eftir örfá atriði sem ég ætla að drepa á áður en ég lýk máli mínu.
Ég var búinn að gera grein fyrir helstu efnisatriðum nefndarálits 2. minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar sem Árni Johnsen alþingismaður undirritar auk mín. Í því nefndaráliti er niðurstaða okkar sú að við leggjumst gegn því að áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða verði samþykkt í núverandi mynd og leggjum til aðra málsmeðferð eins og fram kemur í skjalinu og eins og getið hefur verið um í ræðum fyrr í dag. Við teljum með öðrum orðum að það væri betra að breyta lögum um rammaáætlun til að færa verkefnisstjórn það verkefni að ganga endanlega frá flokkun virkjunarkosta og teljum að það væri miklu betur til þess fallið að ná sátt um niðurstöðuna.
Ég gat þess fyrr í ræðu minni að svo virtist sem ríkisstjórnarflokkarnir ætluðu sér áður en málið var upphaflega lagt fram í þinginu að ná samstöðu sín í milli um einhverja niðurstöðu sem héldi í gegnum þingið, sem mundi með öðrum orðum ekki breytast í meðförum Alþingis. Eins og hv. þingmenn þekkja hefur hins vegar komið fram að einstakir þingmenn, bæði úr ríkisstjórnarflokkunum og eins óháðir þingmenn sem í þessu máli hafa staðið nærri meiri hlutanum, hafa verið með ýmis sérsjónarmið sem fram koma meðal annars í umsögn meiri hluta atvinnuveganefndar. Þar gerir hv. þm. Kristján L. Möller mjög athyglisverðan fyrirvara sem snertir marga þætti í þessu sambandi og er full ástæða til að vekja athygli á þeim sjónarmiðum sem hann lætur þar í ljósi. Ég verð að segja að þó að hv. þingmaður tilheyri meiri hluta nefndarinnar en ekki minni hluta og komi úr pólitískt annarri átt eru þau sjónarmið sem hann reifar í fyrirvörum sínum að mörgu leyti mjög í takt við það sem hefur verið áhersla okkar sjálfstæðismanna, bæði í atvinnuveganefnd og umhverfis- og samgöngunefnd. Þess vegna vek ég sérstaklega athygli á hinum ágæta fyrirvara Kristjáns L. Möllers.
Hv. þm. Þór Saari nálgast málin hins vegar úr annarri átt í fyrirvara sínum í atvinnuveganefnd og raunar í umhverfis- og samgöngunefnd líka. Hið sama gera fleiri þingmenn sem engu að síður skrifa undir meirihlutaálitið en gera verulega fyrirvara. Fyrir utan Þór Saari sem er áheyrnarfulltrúi í nefndinni eru það nefndarmennirnir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Róbert Marshall og Atli Gíslason. Segja má að fyrirvörum þeirra megi lýsa í stórum dráttum með því að þar sé um að ræða áherslur sem ganga mun lengra í verndarátt en tillaga ráðherranna og sú niðurstaða sem meiri hlutinn í umhverfis- og samgöngunefnd mælir með að verði samþykkt.
Í þessum fyrirvörum eru mörg athyglisverð sjónarmið þó að ekki verði fallist á þau öll, en það er full ástæða fyrir þingmenn að skoða þetta. Svo eru þegar komnar fram breytingartillögur, a.m.k. frá hv. þm. Atla Gíslasyni, um veigamikla þætti. Mér sýnist hann í fljótu bragði leggja til að færð verði úr nýtingarflokki í biðflokk ein átta svæði sem hafa verið sett í nýtingarflokk á grundvelli þess að þar verði ráðist í jarðvarmavirkjanir. Þarna er um býsna róttækar tillögur að ræða miðað við það að búið er að fara í gegnum töluvert mikið ferli áður en að þessu er komið.
Auðvitað er hér undirliggjandi pólitískur og hugmyndafræðilegur ágreiningur. Það er ekkert launungarmál að það eru skiptar skoðanir á þingi og í þjóðfélaginu almennt um hversu langt eigi að ganga í nýtingu þeirra orkuauðlinda sem við Íslendingar búum yfir. Því sjónarmiði heyrist oft hreyft að við hvorki eigum að né þurfum að virkja öllu meira, a.m.k. ekki á næstunni. Úr þeirri átt þar sem mest áhersla er lögð á vernd er, liggur mér við að segja, kerfisbundin andstaða við eiginlega allar framkvæmdir á þessu sviði. Það hefur áhrif í þessu sambandi á umræðuna. Rammaáætlun var með sínum hætti ætlað að brúa bil eða ná sátt um eitthvert vinnulag sem gæti þá verið til þess fallið að draga úr deilum, en eins og ég sagði fyrr í ræðu minni finnst mér (Forseti hringir.) aðkoma ráðherra ríkisstjórnarinnar og ríkisstjórnarflokkanna á síðasta stigi málsins áður en það kom fyrir þingið vera til þess fallin að setja það ferli allt úr skorðum.