141. löggjafarþing — 42. fundur,  29. nóv. 2012.

aðild SVÞ að starfshópi um ESB-mál.

[10:59]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S):

Frú forseti. Ég þakka sérstaklega fyrir þetta snöfurmannlega og skýra svar hæstv. utanríkisráðherra. Ég fagna í rauninni efnislegu svari hans um leið og ég undirstrika það að ég skil vel að hann þurfi meðal annars að ráðfæra sig við samráðherra sína. Ég ítreka það sem ég sagði áðan: Ég trúi því ekki að hæstv. atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra fari að móast við þessari beiðni Samtaka verslunar og þjónustu.

Ég fagna því að þessi samtök muni bætast í landbúnaðarhópinn og efast ekki um að við munum fá enn betri samning en ella á þessu sviði.