fjárlög 2013.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Vali Gíslasyni fyrir ræðu hans og samstarfið í fjárlaganefnd. Hann nefndi það í ræðu sinni að við værum sammála um margt í fjárlaganefnd, en þar færu fram átök um hugmyndafræði. Hann nefndi sérstaklega í sinni ræðu að ríkisstjórnin hefði leitast við að vernda velferðarkerfið.
Nú finn ég því ekki sérstaklega stað í þeim tillögum sem ríkisstjórnin hefur lagt fram undanfarin kjörtímabil. Það hafa verið haldnir fjölmargir íbúafundir víðs vegar um land til þess að mótmæla niðurskurði, sérstaklega í heilbrigðismálum. Ég vil spyrja hv. formann fjárlaganefndar hvort það hafi ekki verið gengið of langt í niðurskurði til heilbrigðisstofnana víðs vegar um landið og hvort það þurfi ekki (Forseti hringir.) að ráðast í úrbætur á þeim vettvangi á næstu kjörtímabilum.