fjárlög 2013.
Virðulegur forseti. Mér þykir leitt ef hv. þingmaður finnur því ekki stað í aðgerðum ríkisstjórnarinnar og meiri hlutans á Alþingi undanfarin ár að reynt hafi verið að verja velferðar- og menntakerfið eftir föngum. Það þýðir ekki að þessi hluti í samneyslunni hafi ekki orðið fyrir áföllum vegna efnahagshrunsins eins og við höfum öll orðið fyrir. Það hefur verið reynt að milda áhrif þeirra eins og mögulegt hefur verið. Það hefur verið gerð helmingi minni aðhaldskrafa á velferðar- og menntakerfið en á almennan rekstur og stjórnsýslu hjá ríkinu síðastliðin þrjú ár. Með öðrum orðum hefur verið reynt að verja velferðar- og menntakerfið umfram aðra í niðurskurði og samdrætti útgjalda. Ef það hefur farið fram hjá hv. þingmanni þykir mér það leitt.
Auðvitað hafa verið mótmæli. Auðvitað hafa verið mótmæli við niðurskurði í útgjöldum, þó það nú væri. Þó það nú væri að við létum það okkur varða, þjóðin öll, að hafa orðið fyrir því áfalli sem hér varð. Ég tek hins vegar undir það með hv. þingmanni að héðan í frá, og þetta fjárlagafrumvarp markar þau tímamót eins og merki eru um í frumvarpinu (Forseti hringir.) sjálfu og breytingartillögum meiri hlutans við það, verður snúið til annars vegar hvað þessa þætti varðar.