141. löggjafarþing — 42. fundur,  29. nóv. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[12:04]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Björn Valur Gíslason) (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef ekki áttað mig á því hingað til á þessum þrem árum um hvað hv. þingmaður er að tala þegar hann talar um kerfisbreytingar í heilbrigðiskerfinu. Hvaða kerfisbreytingar hafa átt sér stað í heilbrigðiskerfinu? Þær hafa aldrei verið nefndar hér á nafn, þær hafa aldrei verið taldar upp. Það hafa aldrei verið færð nein rök fyrir því að ráðist hafi verið í einhverjar kerfisbreytingar í heilbrigðiskerfinu. Um hvað er þingmaðurinn að tala, virðulegur forseti?

Það hefur orðið niðurskurður og það hefur verið samdráttur í útgjöldum, það er allt annar hlutur en að gera kerfisbreytingu. Í fjárlagafrumvarpinu og breytingartillögum meiri hlutans á því eru gerðar tillögur um aukin útgjöld til heilbrigðiskerfisins. Ég taldi upp á annan milljarð kr. til Landspítala Íslands, Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, Sjúkrahússins á Stykkishólmi og afturkallaðar aðhaldskröfur á ýmsar heilbrigðisstofnanir vítt og breitt um landið. Það hefur vonandi ekki farið fram hjá hv. þingmanni. Það er viðsnúningur í þessu frumvarpi sem við erum að tala um, sem betur fer. (Forseti hringir.) Hann er kannski ekki eins mikill og við hefðum öll viljað hafa hann, en hann er til staðar.