141. löggjafarþing — 42. fundur,  29. nóv. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[14:32]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Kristjáni Þór Júlíussyni fyrir málefnalega og innihaldsríka ræðu um fjárlög næsta árs. Ég tek undir margt sem hann sagði, eins og gengur, en er ekki endilega sammála öllu því sem þar kom fram. Hann kvartaði mikið undan því að ríkisstjórnin væri að bregðast í uppbyggingarmálum en þá vil ég benda hv. þingmanni á það, kannski hefur hann gleymt því, að miklar framkvæmdir eru fram undan víða um land. Ég get fullvissað hv. þingmann um að þegar kemur að innviðum á Húsavík, varðandi uppbyggingu iðnaðarkosta á því ágæta svæði, er þegar hafinn undirbúningur að því að mæta þeim kröfum og þörfum um innviði upp á röska 2 milljarða kr. Það er þegar hafið og verður vonandi gengið frá því fljótt og vel. Þar fyrir utan er verið að leggja gríðarlega fjármuni í uppbyggingu innviða mjög víða um land. Ég get nefnt Vaðlaheiðargöng, Norðfjarðargöng, ég get reyndar líka nefnt Seyðisfjarðargöng sem eru komin á áætlun og Héðinsfjarðargöng sem voru kláruð á yfirstandandi kjörtímabili. Ég get nefnt fjölda vega, t.d. í kjördæmi hv. þingmanns, sem lokið var við á þessu kjörtímabili. Það er ekki hægt að saka hæstv. ríkisstjórn vinstri flokkanna um að hún hafi eitthvað bograð við þessi verkefni, heldur var gefið í á mörgum sviðum. Ég fullyrði að það sem aðrir gátu ekki í góðæri gerðum við í kreppu. Það er sannarlega að koma fram á þessum tíma þegar við höfum fyrst og fremst þurft að glíma við kreppu en jafnframt gefið verulega í þegar kemur að innviðum. Hv. þingmaður getur varla verið ósammála mér að því leyti að mikið hafi verið lagt (Forseti hringir.) af mörkum.