141. löggjafarþing — 42. fundur,  29. nóv. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[15:33]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og vildi gjarnan inna hann sérstaklega eftir tveimur atriðum varðandi fjárlagagerðina. Af því að það situr nú hér í þingsalnum mikill áhugamaður um safnliði, hv. þm. Þór Saari, væri ekki úr vegi að ræða við hv. þm. Höskuld Þórhallsson, af því að hann tekur aðeins á því í sínu áliti um breytinguna sem var gerð við úthlutun safnliða á fjárlögum.

Hvert er mat hv. þingmanns á því hvernig til hefur tekist? Við gagnrýnum það í áliti 1. minni hluta hvernig farið hefur með þetta. Við sjáum þess stað í fjárlagatillögunum að það er verið að hvika frá þeim markmiðum sem menn settu sér um breytingar á verklagi við þetta og það væri mjög fróðlegt einfaldlega af þeirri ástæðu, eins og ég gat um áðan, að hv. þingmaður hefur verið dálítið mikið inni í þessu og varaði við þeim breytingum sem þarna voru gerðar. Þetta eru ekki stór atriði inni í fjárlögunum en hins vegar hefur þetta fengið mjög mikinn tíma og rúm í umræðunni, sérstaklega hér fyrr á árum og ég tala nú ekki um í aðdraganda þeirra breytinga sem verið var að gera. Það væri fróðlegt að heyra álit hans á því hvernig til hafi tekist.

Hitt atriðið lýtur að meðferð upplýsinga við fjárlagagerðina og ég sé að tíminn er að renna út þannig að ég ætla að nýta það við síðara andsvar.