141. löggjafarþing — 42. fundur,  29. nóv. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[15:39]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hv. þingmaður talar um, eins og hann hefur svo sem oft áður gert, nauðsynlegan aga í ríkisfjármálum og þar erum við algjörlega sammála, ég og hv. þingmaður.

Því langar mig að spyrja hv. þingmann sérstaklega út í það sem kemur einmitt fram í varnaðarorðum Seðlabankans og áhyggjum hans gagnvart fjárlögum næsta árs, að það vanti aga. Í raun og veru er niðurstaða Seðlabankans sú að það þurfi að setja fjármálareglur fyrir Alþingi. Bara binda þær í lög eins og var gert við sveitarfélög.

Við sjáum þess merki hér í þessum fjárlögum hvernig farið er með þetta, það kemur skýrt fram í frumvarpinu að ekkert muni raska jöfnuði í ríkisfjármálunum og svo gildir ekki sá texti sem þar stendur. Síðan er farið í alls konar gæluverkefni hingað og þangað. Þess vegna vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann telji ekki mikilvægt að setja fjármálareglur til þess að ná tökum á fjármálum ríkisins. Í andsvörum á milli hv. þingmanna hér áðan voru menn krafnir svara um hvort þeir styðji byggingu nýs Landspítala – háskólasjúkrahúss. Mér finnst þessi spurning vera þannig að ekki sé hægt að gera kröfu til hv. þingmanna að svara henni, vegna þess að við höfum ekki séð nein gögn um það mál í mjög langan tíma. Við fengum síðast kynningu á því verkefni síðastliðið vor, lauslega.

Hvernig er þá hægt að ná einhverjum aga og festu í ríkisfjármálum þegar ætlast er til þess að menn svari slíkum spurningum á hinu háa Alþingi, um stærstu framkvæmd Íslandssögunnar, án þess að geta fengið að skoða viðkomandi gögn? Það hlýtur auðvitað að vera, og það sem ég vil spyrja hv. þingmann um er hvort það þurfi ekki að setja mun strangari ferla gagnvart þeim ákvörðunum sem er verið að taka. Tillögur koma tilbúnar innan úr Stjórnarráðinu og svo á að afgreiða þær bara einn, tveir og þrír í gegnum þingið.