141. löggjafarþing — 42. fundur,  29. nóv. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[16:31]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er auðvitað sammála hv. þingmanni um að það er mikilvægt að við tryggjum grunnþjónustuna. Það er hins vegar mjög sérkennilegt að hlusta á ræðu hv. þingmanns um að niðurskurðinum sé lokið og viðspyrnan sé hafin þegar þær staðreyndir blasa við manni að í 1.800 manna sveitarfélagi þurfi að loka heilsugæslustöðinni sem er grunnþjónusta, þetta er bara heilsugæslustöð — bara heilsugæslustöð — aðra hverja helgi og láta fólkið sækja þjónustuna til Grundarfjarðar. Eins og hv. þingmaður veit er því miður oft ófært þarna á milli og það er bara þannig að þegar fólk býr við þær aðstæður, við þennan ótta og óöryggi, þá lítur það á sig sem eins konar vinnudýr fyrir ríkissjóð sem eiga að afla tekna og skapa gjaldeyri en eiga ekki einu sinni að fá grunnþjónustu. Það er þetta sem ég er að tala um hér.

Hv. þingmaður nefndi þá fjölmennu fundi sem voru haldnir víðs vegar um land þegar þessar brjáluðu tillögur ríkisstjórnarmeirihlutans voru lagðar fram um að fara í einmitt sömu vegferð og þarna er verið að fara, að skera niður hvort heldur sem var á Norðurlandi, Austurlandi, Vestfjörðum, eða hvar sem það var. En ríkisstjórnarmeirihlutinn var auðvitað hrakinn til baka með þær af íbúum svæðanna því við vitum auðvitað að ef grunnþjónustan er ekki í lagi úti á landsbyggðinni, og hvar sem er, er ekki hægt að ætlast til að fólk búi þar. Og hvað ætla menn að gera þegar vinnudýrin eru ekki til þess að skaffa gjaldeyrinn og tekjurnar, hvað gera menn þá?

Þetta er auðvitað ekki boðlegt. Því miður er það svo að þegar búið er að senda svona skilaboð inn í samfélögin verður fólk mjög óöruggt með sig og sína. Það gefur auðvitað augaleið að ef fólk hefur ekki aðgang að grunnþjónustunni þarf það enga aðra þjónustu, það segir sig alveg sjálft. Þess vegna er svo mikilvægt að tryggja grunnþjónustuna og um það eru ekki deilur en samt eru verkin með öðrum hætti.