fjárlög 2013.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Mig langar að inna hann eftir því eða leita upplýsinga hjá honum um þann þátt sem lýtur að forsendum hagvaxtarspár. Ég átti í orðaskiptum við hæstv. utanríkisráðherra þegar ég flutti framsögu fyrir nefndaráliti 1. minni hluta um eina af forsendunum sem liggja til grundvallar spám frá Hagstofunni, Seðlabankanum og ASÍ, bygging við kísilverið, stórorkunotenda norður á Bakka við Húsavík. Þess sér ekki stað í fjárlagafrumvarpinu að fjárveitingar séu til styrkingar innviða svo að unnt sé að ganga frá samningum þar að lútandi. Þar sem ég veit að hv. þingmaður ber málin mjög fyrir brjósti þætti mér vænt um að heyra afstöðu hans til þess og hvort hann geti upplýst mig um væntingar til fjárveitinga svo að þau verkefni komist á. Sveitarstjórnarmenn nyrðra segja mér að það skorti til að þeir geti gengið frá sínum samningum.
Ég kemst heldur ekki hjá því að nefna við hv. þingmann, sem formann allsherjar- og menntamálanefndar, þskj. 580 varðandi heiðurslaun listamanna. Þar gerum við tillögu um að einn hv. þingmaður njóti jafnframt heiðurslauna listamanns. Ég met hann mikils, sérstaklega sem kvikmyndagerðarmann, en við erum þar komin með einn tiltekinn listamann á tvöföld laun og heiðurslaunin hækka um 126% á milli ára. Hvernig getur það gengið upp?