141. löggjafarþing — 42. fundur,  29. nóv. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[18:07]
Horfa

Björgvin G. Sigurðsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það er mjög mikilvægt, eins og kom fram í máli hv. þingmanns, til að forsendur hagvaxtarspár gangi eftir, og jafnvel að þær verði vonum og spám framar, að orkunýtingaráform gangi eftir, t.d. hér sunnan heiða í Helguvík þar sem líka hafa verið áform um kísilver. Það frestaðist að sinni þrátt fyrir að stjórnvöld væru búin að rúlla út rauða teppinu fyrir verkefnið af því að þeir sem stóðu á bak við það, bandarískir fjárfestar, gengu út úr verkefninu. Vonandi verður það að veruleika. Við fengum til dæmis þær ágætu fréttir í morgun að sveitarstjórnin í Vogum væri búin að samþykkja skipulag sem sneri að línumálum sem liggja til grundvallar allri orkunýtingu suður með sjó.

Hvað varðar styrkingu innviða á norðaustursvæðinu mundi ég kannski vilja biðja þingmanninn að vera nákvæmari í spurningunni. Ég var einn af þeim til dæmis sem barðist mjög fyrir því fyrr á þessu ári að Vaðlaheiðargangaverkefnið gengi fram og var mjög ánægður þegar Alþingi samþykkti málið. Það er mjög mikilvægt fjárfestingarverkefni og snýr beint að innviðastyrkingunni á norðaustursvæðinu, orkunýtingunni á Þeistareykjasvæðinu og allri uppbyggingu þar, og aftur nálægðinni og aðgengi að Eyjafjarðarsvæðinu og rennslinu þarna á milli. Hvað varðar aðra innviðastyrkingu vona ég að hún gangi fram en ætla ekki að fara að fullyrða um það sem ég hef ekki nákvæmar upplýsingar um.

Varðandi heiðurslaunin er það einfaldlega óbreyttur listi frá fyrri árum. Fólk er ekki tekið út af þeim listum þótt það fari að starfa tímabundið við eitthvað annað þannig að ég blanda mér ekki í það hvernig einstakir listamenn — ég meina, Björk og alls konar fólk sem hefur verið á listunum hefur unnið ýmis önnur störf tímabundið og (Forseti hringir.) þetta snýr ekki að því heldur fyrst og fremst heiðrinum.