141. löggjafarþing — 42. fundur,  29. nóv. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[18:09]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin en vil þó segja til áréttingar því sem ég nefndi varðandi heiðurslaunin, að viðkomandi einstaklingur er á launum hjá skattgreiðendum sem þingmaður. Þarna er um að ræða tvöfalda greiðslu frá skattgreiðendum til sama einstaklings fyrir mismunandi hlutverk. Ég hef staðið í þeirri meiningu, og hef stutt og studdi hækkun heiðurslistamannalauna en mér finnst sá gjörningur stangast á einhvern veginn. Ég spyr hvort það séu einhverjar reglur sem kalla á að þetta þurfi að vinnast þannig og vek athygli á því við hv. formann allsherjar- og menntamálanefndar að það er algjör stílbrjótur og gengur að minni hyggju þvert gegn anda þeirra laga sem sett voru um heiðurslaun listamanna.

Varðandi styrkingu innviðanna, af því að hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson gengur hér í salinn, þá gaf hann það til kynna í ræðu fyrr í dag að þess væri að vænta að við 3. umr. fjárlaga kæmi fram tillaga sem styddi að hægt væri að undirrita þá samninga í Norðurþingi, sem ég gat um, til stuðnings því að þau verkefni sem eru mikilvæg forsenda í hagvaxtarspám hér á landi gætu gengið fram. Ég inni hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson eftir því hvort hann hafi sömu upplýsingar og aðrir fjárlaganefndarmenn um tillögurnar sem þar eru í bígerð.