fjárlög 2013.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Bjarnasyni fyrir ræðu hans. Þar var margt ágætt þótt ég sé ekki sammála öllu sem kom fram.
Ég ætlaði fyrst að koma aðeins inn á sameiginlegt áhugamál okkar hv. þingmanns sem er Evrópusambandsumsóknin og aðlögunarferlið sem hann greindi réttilega frá í ræðu sinni. Ég fæ ekki betur séð en að í breytingartillögum meiri hlutans í fjárlaganefnd sé gerð grein fyrir verulega auknum styrkjum frá Evrópusambandinu vegna aðildarumsóknarinnar. Ég er að velta fyrir mér hvort hv. þingmaður hafi áttað sig á því. Auðvitað var gert ráð fyrir nokkur hundruð milljónum, ég man ekki hvort það voru 300 eða 350 milljónir eða hvað það var, í fjárlagafrumvarpinu eins og það var lagt fram í haust. Í breytingartillögum meiri hlutans kemur fram að styrkir frá Evrópusambandinu vegna aðildarumsóknar Íslands hækki um 806 milljónir. Sennilega er sú tala niðurstöðutala. Það er alla vega um að ræða verulega breytingu og verulega aukningu frá því sem fram kom í fjárlagafrumvarpinu og ég vildi inna hv. þingmann eftir áliti hans á því atriði.
Hitt atriðið sem ég ætlaði að minnast á snertir þjóðkirkjuna og ég tek eindregið undir þau sjónarmið sem komu fram hjá hv. þingmanni vegna þess. Það er auðvitað um að ræða, eins og hefur áður verið rætt í þinginu, að ríkið ætlar enn að ganga gegn því samkomulagi sem var fyrir hendi og hefur verið fyrir hendi við kirkjuna frá 1997. Það er ætlunin, bæði samkvæmt fjárlagafrumvarpi og samkvæmt nýframkomnum bandormi, að staðfesta skerðingu á sóknargjaldinu til kirkjunnar, þ.e. innheimta á sóknargjaldið af fullum þunga en skila bara hluta til kirkjunnar og annarra safnaða. Ég vildi inna þingmanninn eftir því (Forseti hringir.) hvort hann teldi það ásættanlegt í ljósi yfirlýsinga sem fram hafa komið frá þingmönnum úr flestum flokkum um að það beri að standa vörð um kirkjuna.