fjárlög 2013.
Hæstv. forseti. Hv. þm. Jón Bjarnason gerði grein fyrir því í ræðu sinni að það væri margt í fjárlagafrumvarpinu sem hann styddi en ýmislegt sem hann gerði athugasemdir við. Sennilega á það nú við um okkur flest og auðvitað er það þannig að þegar fjárlög heils ríkis eru til umfjöllunar erum við hvorki með öllu né á móti.
Það sem ég vildi spyrja hv. þingmann að var afstaða hans til fjárlagafrumvarpsins í heild, hvort um væri að ræða stuðning af hans hálfu við fjárlagafrumvarpið eða hvort stuðningur hans væri skilyrtur með einhverjum hætti.