141. löggjafarþing — 42. fundur,  29. nóv. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[22:01]
Horfa

Lúðvík Geirsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir viðbrögð hans og jafnframt fyrir ræðuna í dag, mér fannst hún málefnaleg og snerta umræðuna á svolítið breiðari og víðari grunni heldur en stundum vill verða í svona karpi hér í þingsal. Mér finnst að fjárlagaumræðan sé ákveðinn eldhúsdagur og að menn eigi að gefa sér tækifæri og tíma til þess að ræða þessi mál á breiðari grunni frekar en þrengri. Við höfum öll þessi gögn um tölur og atriði sem eru í einstaka fjárlagatillögum, það er alveg óþarfi að eyða öllum tímanum í upptalningu á því. Við ættum að einbeita okkur frekar að stóru myndinni og því verkefni sem blasir við.

Fjármálareglur eru einn af þeim þáttum sem mann undrar að hafi ekki verið til sem stjórntæki í fjárlagagerð og mann undrar einnig að það þurfi heilt hrun, efnahagslegt hrun samfélagsins, til þess að menn fari að ræða það. Það var kannski öðru líkt að ríkisvaldið varð fyrst til þess að sjá að það þyrfti að setja slíkar reglur fyrir einhverja aðra en það sjálft. Það væri nú rétt að byrja á sveitarfélögunum og setja skýrar fjármálareglur fyrir þau og svo ýmsa aðra aðila, en menn hér ætla að vera síðastir til þess að horfa í eigin lendur í þeim efnum.

Ég tel að það sé mjög eðlilegt varðandi fjármálareglur að sett séu tímamörk við að ná eðlilegu jafnvægi í skuldastöðu ríkisins. Þar séu sett ákveðin viðmið, það sé gengið út frá því að það sé ákveðið hlutfall af tekjuafgangi sem beri að setja til niðurgreiðslu hverju sinni á meðan menn eru að ná jafnvægi og að það þurfi að setja nokkuð strangar og stífar reglur í þessum efnum til þess að við náum árangri, frekar á skemmri tíma en lengri.

Það verður líka að horfa til þess að eftir þann erfiða og þunga niðurskurð sem við gengum hér í gegnum varðandi ýmsar grunnstoðir í samfélaginu er ekki óeðlilegt, þegar losar aðeins um mestu spennu, að menn gefi sér (Forseti hringir.) örlítinn tíma til þess að ná jafnvægi í þeim þáttum samhliða því að menn einblíni á og taki til við skuldavandann.