fjárlög 2013.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir svarið. Ég held að það sé rétt að það muni taka einhvern tíma að snúa skipinu en það verðum við að sjálfsögðu að gera af varkárni og raunsæi. Áhyggjuefnið er vitanlega það að ríkisstjórnin hefur notað þessi fjögur ár til að byggja grunninn að tekjum ríkissjóðs með skattahækkunum fyrst og fremst, ekki með því að örva atvinnulífið eða með því að gera fyrirtækjum kleift að skapa meiri tekjur sem ríkissjóður nyti þá góðs af í gegnum skatta af þeim tekjum. Meira að segja voru auknar álögur á helstu útflutningsgreinar okkar, eins og varðandi raforkuskattinn á álframleiðsluna og það allt saman, á meðan hallar undan fæti á mörkuðum fyrir þær greinar og ekki er staðið við gerða samninga við aðrar.
Við heyrum af því að sum fyrirtæki í sjávarútvegi spá því að verð á ákveðnum saltfiskmörkuðum í Suður-Evrópu lækki um 25–30% eftir áramót, svo dæmi sé tekið, sem hefur beinar afleiðingar hingað heim takist ekki að afla nýrra markaða.
Á sama tíma stórauka Rússar og Norðmenn framleiðslu sína í ríkisstyrktum sjávarútvegi. Sú samkeppni sem við eigum í er því ekki jöfn, hún er í rauninni alveg rammskökk, svo ekki sé dýpra í árinni tekið.
Ég held að mikilvægt sé að við séum ófeimin við að ræða hvaða útfærslur hægt er að nota þegar kemur að því að fara að vinda ofan af þeirri stefnu sem verið hefur við lýði hér allt of lengi. Ég ítreka það sem ég sagði, að þegar farið verður í að breyta skattkerfinu til baka eftir þær 170–200 breytingar sem gerðar hafa verið á þessum fjórum árum, tekur það vitanlega tíma og þarf að ráðast í það af skynsemi.