141. löggjafarþing — 43. fundur,  30. nóv. 2012.

störf þingsins.

[10:36]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Ég ætla að nokkru leyti að fjalla um sama efni og hv. þm. Ragnheiður E. Árnadóttir. Ég rak reyndar augun í það þegar ég var á leiðinni hingað í pontuna að nú hefur forsætisráðherra lagt fram skýrslu sem heitir Skýrsla forsætisráðherra um vandaða lagasetningu, áhrif laga um opinberar eftirlitsreglur og störf ráðgjafarnefndar 2006–2011. Ég vona að þau sjónarmið sem þar koma fram um vandaða lagasetningu verði höfð í heiðri við meðferð mála á þinginu. Á það hefur töluvert skort að undanförnu og á það skortir töluvert varðandi mörg þau mál sem hér eru til umfjöllunar eins og hv. þm. Ragnheiður E. Árnadóttir vakti athygli á.

Ég nefni sérstaklega í því sambandi meðferð stjórnarskrárfrumvarpsins. Við umfjöllun um málið í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fyrir þremur dögum bókuðum við hv. þm. Ólöf Nordal mótmæli við tilteknum atriðum varðandi vinnubrögð nefndarinnar í þessu máli. Til að upplýsa hæstv. forseta og hv. þingmenn um efni þeirrar bókunar ætla ég, með leyfi forseta, að lesa hana við þetta tækifæri:

„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd mótmæla harðlega málsmeðferð meiri hluta nefndarinnar vegna breytinga á stjórnarskrá. Sú hugmynd að senda til Feneyjanefndarinnar aðeins hluta úr greinargerð frumvarps til stjórnskipunarlaga án nokkurra frekari gagna er alveg ófullnægjandi. Þá er alveg óskiljanlegt að þetta frumvarp verði ekki sent formlega til umsagnar eins og venja er með lagafrumvörp heldur láta auglýsingu eftir umsögnum duga. Eina rétta er að leitað verði eftir formlegum umsögnum og rúmur frestur sé gefinn til þess þegar um slíkt grundvallarmál er að ræða. Það er fráleitt að í auglýsingu eftir umsögnum sé aðeins veittur 14 daga frestur. Ófært er að skila inn viðamiklum umsögnum á svo stuttum tíma. Sjálfstæðismenn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafna þessum vinnubrögðum meiri hluta nefndarinnar algerlega.“