fjárlög 2013.
Forseti. Þá erum við sammála um það — við erum ekki oft sammála í þingsal, ég og hv. þm. Ragnheiður Elín Árnadóttir — að sá halli sem ríkið verður rekið á í ár sé 10% af því sem var 2009 og að það sé verulegur árangur.
Það er talað um að brottfall í framhaldsskóla sé ríkisstjórninni að kenna. (REÁ: Nei.) Ég er ekki alveg búinn að átta mig á þeirri tengingu því að ef eitthvað hefur verið hefur heldur verið bætt við í framhaldsskólum, m.a. í fjárlagafrumvarpinu. Skólum hefur verið fjölgað, það hefur verið gripið til ýmissa ráðstafana bæði í samstarfi aðila vinnumarkaðarins og fleiri til að koma krökkum inn í skóla. Ég átta mig því ekki alveg á þeirri tengingu hvernig í ósköpunum sé hægt að rekja brottfall í framhaldsskólum til núverandi ríkisstjórnar.
Að öðrum málum. Hv. þingmaður nefndi það hér áðan og sagði nánast berum orðum að fengi hún einhverju um það ráðið eða hennar flokkur yrði fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar afturkölluð. Í formi Grýlu og Leppalúða yrði það þeirra hlutverk sem tækju við að hætta við þessa vitlausu áætlun. Mig langar að fá þetta staðfest hjá þingmanninum. Mér fannst þetta pínu glannaleg yfirlýsing upp á framtíðina. Í fyrsta lagi má þingmaðurinn hafa sína skoðun á fjárfestingaráætluninni, en að segja það nánast berum orðum hér að hún verði öllsömul afturkölluð, hún sé meira og minna tóm della, það ætti að gera eitthvað annað við peningana, finnst mér pínu glannaleg yfirlýsing og vil fá hana staðfesta eða leiðrétta því að ég held að það sé mikilvægt að slík skilaboð sem fara héðan frá okkur séu rétt.
Hv. þingmaður nefndi sömuleiðis virðisaukaskattinn, að nauðsynlegt væri að finna einhverja tölu á hann þannig að hann færi ekki að leka, menn færu ekki að svíkja undan skatti. Ég vil gjarnan fá að heyra töluna hjá hv. þingmanni, hver hún telur að talan þurfi að vera. Ég held að hún þurfi að vera núll vegna þess að skattsvikin eru mest þar sem skattprósentan er lægst, eða hvað? Er ekki verið að svíkja undan skatti þar sem virðisaukaskattur er 7%? Hvað þarf hann að vera? 3%? 5%? (Forseti hringir.) Í hvaða skattþrepi voru mestu skattsvikin í tekjuskatti og á fjármagnstekjum? Þau voru þar sem skatturinn var lægstur, 10%. Þar voru mestu skattsvikin. (Forseti hringir.) Hver þarf þessi tala að vera að mati þingmannsins?