141. löggjafarþing — 43. fundur,  30. nóv. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[14:15]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S):

Frú forseti. Við höldum hér áfram 2. umr. fjárlaga fyrir árið 2013. Fjárlögin eru að mínu viti langpólitískasta plagg sem getur komið frá ríkisstjórn hverju sinni. Fjárlögin bera, og eiga að bera, þess merki hvernig ríkisstjórn hvers tíma ætlar að takast á við þau viðfangsefni sem blasa við. Hvaða áherslur ríkisstjórnin leggur hverju sinni í skattamálum, atvinnumálum, menntamálum, heilbrigðismálum o.s.frv.

Það sorglega við að líta á, skoða og fara yfir fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2013 er metnaðarleysið sem ríður röftum í frumvarpinu. Ekki bara metnaðarleysi heldur stóru eyðurnar sem eru skildar eftir í frumvarpinu. Það er sök sér og við getum tekið pólitíska umræðu um hvort það eigi að vera háir skattar eða lágir. Ég er talsmaður þeirrar stefnu að það ríki sem mest frelsi á öllum sviðum. Það verði lágir skattar þannig að við höfum öflugt atvinnulíf sem fólkið okkar — það var verið að tala um menntamál áðan og ég kem inn á þau á eftir — sem hefur farið í háskóla og menntað sig til að sinna ákveðnum störfum hafi tækifæri til að sinna þeim þegar það kemur úr skóla.

Allt eru það þær pólitísku átakalínur sem við stöndum frammi fyrir hverju sinni. Það er gott að geta tekið þær en það er harla erfitt, eiginlega bara mjög erfitt, þegar við höfum ekki einu sinni heildarmyndina. Tekjuhlið frumvarpsins var dreift í gær og ég greini að mikið eða ákveðið stress er í gangi. Við sem erum hér og leyfum okkur að fara yfir þetta pólitískasta plagg þingsins hverju sinni og gefum okkur tíma í það, og við höfum ávallt gefið okkur tíma í það, það er verið að þrýsta á okkur að klára þá umræðu til að koma að umræðunni um tekjuhliðina.

Gott og vel. Við getum þá gert hlé á þeirri umræðu og rætt tekjuhliðina. Það vonda í því öllu saman er, fyrir utan þær stórfelldu hækkanir sem tekjuhliðin og bandormurinn um tekjurnar fela í sér, að stóra myndin til lengri tíma litið er algjörlega óljós. Af hverju segi ég það? Jú, einfaldlega út af því að í frumvarpinu er ekki snert á því, og það er engan veginn skýr mynd um það, hvernig við ætlum að leysa úr viðfangsefnum nýs Landspítala. Svo ég tali nú ekki um Íbúðalánasjóð sem sumir vilja helst ekki ræða þessa dagana en vandi hans er gríðarlegur. Hann er enginn 13 milljarðar, þetta eru miklu hærri fjárhæðir. Við erum að tala um fjármagn til strandsiglinga, er það skýrt? Nei, það er ekkert skýrt. Við fáum ekki að sjá hverjar eru óbókfærðar lífeyrisskuldbindingar A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.

Það er hægt að tala um Hörpu og það er hægt að tala um svo mörg fleiri mál sem eru algjörlega óafgreidd af hálfu ríkisstjórnarinnar. Það kann að vera út af miklum ágreiningi, það er engin nýlunda í þeim herbúðum, við að leysa úr þeim málum.

Að mínu viti er sorglegt að horfa upp á ríkisstjórn sem kennir sig við félagshyggju, á útlendu máli sósíalisma, fara í atvinnulífið trekk í trekk. Enn og aftur upplifum við að ríkisstjórnin skynji ekki að hún þarf að vinna með atvinnulífinu. Hún getur ekki farið í það að vera alltaf að vinna gegn atvinnulífinu. Svo ég fari ekki út í þá sálma sem undirskriftir ráðherra þýða á kjarasamningum, á stöðugleikasáttmála. Það er eins og undirritanirnar skipti ráðherra í ríkisstjórn engu máli. Þau eru að kaupa sér friðinn hverju sinni, að efna samninga er ekki til í þeirra orðabók. Ekki þegar kemur að atvinnulífinu. Ég talaði um að ríkisstjórnin vinni gegn atvinnulífinu, ég tel það í sumum tilfellum beinlínis vera árásir, stanslausar árásir á atvinnulífið.

Við erum með þrjár grunnundirstöður atvinnuvega í landinu. Hverjar eru þær? Sjávarútvegurinn. Við vitum alveg hvernig hefur verið staðið að þeim málum og þessa tímana og stundirnar er verið að taka út frumvarpið um sjávarútvegsmálið með töngum af því það er bullandi ágreiningur innan ríkisstjórnarflokkanna. Svo ég tali nú ekki um þá andstöðu sem vissulega hefur verið meðal okkar í stjórnarandstöðunni gagnvart stórfelldum álögum á sjávarútveginn. Álögum sem hafa það í för með sér að sjávarútvegurinn á í erfiðleikum með að fjárfesta og takast á við þau gríðarlega flóknu verkefni sem blasa nú líka við á erlendum mörkuðum varðandi íslenskar sjávarafurðir. Til hvers er ég að vísa þar? Ég er að vísa til þess að markaðir eru að verða þyngri fyrir okkur. Við erum til að mynda að sjá aukið framboð af þorski frá Barentshafi af hálfu Rússa og fleiri landa sem stuðlar að því að við þurfum að halda enn betur á okkar spöðum. Við þurfum að treysta enn betur á að okkar gríðarlega sterka og mikla fagfólk í sjávarútvegi standi sína vakt og plikt þegar kemur að markaðssetningu íslenskra sjávarafurða. Það ansi hart.

Frú forseti. Það er ansi hart þegar ríkisstjórnin er búin að mjólka allt sem hægt er að mjólka út úr íslenskum sjávarútvegi til að setja inn í gæluverkefnin sitt, sem margoft hefur verið bent á, gæluverkefni sem heitir fjárfestingaráætlun. Gott og vel, því verkefni er ekkert endilega hægt að mótmæla en við þurfum að forgangsraða. Ég held að gríðarlega mikilvægt sé að við pössum upp á að við sjálf hérna heima fyrir séum ekki að veikja grunnundirstöðuatvinnuvegina eins og við erum búin að gera. Ég talaði um stanslausar árásir ríkisstjórnarinnar á atvinnulífið. Ég er búin að tala um sjávarútveginn og get gert það hér á eftir og mun gera það. Það kann að hafa gríðarleg áhrif á sjávarútveginn, ekki bara til skemmri tíma heldur til lengri tíma, á þróun hans og framvindu innan lands en ekki síst varðandi sölu hans til útlanda og það að fá tekjur hingað heim.

Ég er að tala um áhrif meðal annars á stóriðjuna, á iðnaðinn almennt. Tölum fyrst um stóriðjuna. Við sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd, fulltrúar okkar hafa meðal annars dregið fram svik, enn og aftur svik, af hálfu ríkisstjórnarinnar. Ég vil sérstaklega benda á það sem segir í nefndaráliti okkar varðandi sérstakan skatt af seldri raforku. Þar segir meðal annars:

„Norðurál hefur komið á framfæri athugasemdum við fjárlaganefnd vegna framlengingar sérstaks raforkuskatts sem lagður var á tímabundið í fjárlögum 2010 og falla átti úr gildi í árslok 2012. Telur fyrirtækið að verði áformin um framlengingu skattsins að veruleika verði gengið þvert á skýrar samningsskuldbindingar ríkisstjórnar Íslands við Norðurál og fleiri stórnotendur raforku. Forsvarsmenn fyrirtækisins telja að skattlagning raforku samkvæmt lögum nr. 129/2009 feli í sér mismunun, þ.e. feli ekki í sér skattlagningu á öll fyrirtæki landsins og hafi mjög neikvæð áhrif á starfsemi Norðuráls.“

Þetta er eitt dæmi um árás ríkisstjórnarinnar á atvinnulífið, á stóriðjuna, og ég mun á eftir meðal annars koma inn á annan iðnað í landinu og þá ekki síst matvælaiðnaðinn.

Þriðja árásin sem hægt er að tala um í samhengi við grunnatvinnuvegina, sjóinn, sjávarútveginn, iðnaðinn, er auðvitað ferðaþjónustan. Það er grátlegt að horfa upp á hvernig menn eru að reyna að lappa upp á svonefndan Oddnýjarskatt og draga úr þeim skattálögum sem það hefur á ferðaþjónustuna. Það er grafalvarlegt hvernig menn hafa verið að leika sér að því að mínu viti, því það er ekkert annað en leikur.

Frú forseti. Við upplifum hann aftur og aftur. Við upplifðum það í fyrra og í hittiðfyrra að ríkisstjórnin fer fram með offorsi í málum og á þeim sviðum þar sem hún ætlar sér að skattleggja almenning og fyrirtæki í landinu alveg hreint til hins ýtrasta af því hún veit að hún er hvött til að draga til baka. Þá gefur hún aðeins eftir en eftir standa stórfelldar skattahækkanir í samfélaginu sem hafa gríðarleg áhrif á heimilin, fyrirtæki í landinu og tækifæri fyrirtækja til þess að vaxa og dafna, skapa ný störf og taka þannig frekar fólk af atvinnuleysisskrá en að láta það hanga þar inni.

Í því pólitíska plaggi sem fjárlagafrumvarpið er skín enn og aftur í það sjónarmið og markmið ríkisstjórnarinnar að ráðast gegn grunnatvinnulífinu í samfélaginu. Það kann að vera og ég veit að sumum stjórnarþingmönnum finnst erfitt að heyra það og hafa verið frekar súrir þegar ég og fleiri höfum verið að draga það fram en þannig er það bara. Þegar við lítum á tölurnar í fjárlagafrumvarpinu sjáum við fram á stórfelldar hækkanir og álögur á fyrirtækin í landinu. Hvenær ætlar þessi ríkisstjórn að skilja að það er ekki hægt að leggja endalausar álögur á atvinnulífið, á meðan hafa fyrirtækin ekki tækifæri til svigrúms, til að stækka, eflast og dafna. Þannig er það.

Við skulum tala um enn eina árásina á, að mínu mati, fjórðu grunnstoðina í atvinnulífi landsmanna og það er verslun. Verslunin hefur gríðarlega mikla þýðingu hér á landi fyrir utan allt fólkið sem starfar í greininni. Ríkisstjórnin hefur meðal annars stuðlað að því, og við sjáum það, að verslun er í enn ríkara mæli, því miður, að flytjast út. Alla vega á ákveðnum svæðum. Við sjáum erfiðleika á sviði fataverslunar svo ég tali nú ekki um á sviði barnafatnaðar. Af hverju er ekki hægt að flytja verslunina meira inn í landið? Með minni álögum fáum við aukna verslun innan lands svo ég tali nú ekki um fjölgun starfa sem því fylgir.

Ég talaði um og vil benda á svonefndan sykurskatt sem kemur í ljós meðal annars með tekjuhlið frumvarpsins og á að reyna að lappa upp á fjárlagagatið, 800 millj. hið minnsta. Við erum að tala um ríkisstjórn sem hefur algjörlega mistekist að leysa skuldavanda heimilanna. Það vita allir sem fylgjast með að henni hefur mistekist. Reyndar, og það má segja henni það til tekna, hefur hún reynt að koma fram með tillögur. Það hefur bara ekki dugað. Hún hefur reynt að sýna viðleitni á ákveðnum sviðum en það hefur ekki dugað. Menn verða að horfast í augu við það.

En hvað gerir ríkisstjórnin núna? Hún bætir um betur. Hún leggur þennan svonefnda sykurskatt á og reynir að skýla sér á bak við, ekki bara til að brúa fjárlagagatið, forræðishyggju að mínu viti. Það ætti að takast á um það, það er pólitík. Ég tel að einstaklingarnir geti séð um það sjálfir að velja sín matvæli, hvað er hollt og hvað ekki. Við eigum að lifa í upplýstu samfélagi. Við eigum að vita hvað er hollt og hvað ekki. Við eigum að reyna að búa þannig um í samfélaginu að fólk hafi tækifæri til að velja. En ríkisstjórnin ætlar setja þennan sykurskatt á og það er bara eitthvað slump. Það er algjörlega vanhugsað því hvað þýða álögur á matvæli? Það þýða stórfelldar skattahækkanir, gjaldahækkanir hjá heimilum í landinu.

Ríkisstjórnin, sem hefur algjörlega mistekist að takast á við skuldavanda heimilanna, gerir sem sagt gott betur: Hún hækkar greiðslubyrði heimilanna. Af hverju segi ég það? Jú, að setja á þennan sykurskatt hefur beinar afleiðingar til hækkunar á verðlagi úti í samfélaginu. Beinar afleiðingar, ekki bara óbeinar. Við erum líka að tala um að með því að setja á þennan sykurskatt munu fyrirtæki þurfa að gera stórfelldar breytingar, t.d. á tollkerfum. Það hefur mikinn kostnað í för með sér og við vitum alveg hvar sá kostnaður mun lenda. Hann mun lenda á heimilunum í landinu, hann fer út í verðlagið. Fyrir utan að það að skattleggja ákveðnar vörur umfram aðrar út af sykurmagni, og það er sykur í mjög mörgum vörum, mun þýða auknar álögur á íslenskar iðnaðarvörur og íslensk störf hér heima. Ég er ekki eingöngu að tala um sælgætið heldur meira og minna alla iðnaðarvöru sem er í tengslum við matvælin.

Hæstv. ráðherra Jóhanna Sigurðardóttir, forustumaður félagshyggjustjórnar Íslands, forustumaður sósíalistastjórnar Íslands, beitir sér fyrir því að hækka gjöld á matvælum í ljósi sykurskatts. Það þýðir, og hún verður að tala hreint út í því máli, auknar álögur á heimilin í landinu. Líka fyrirtækin en ekki síst heimilin.

Það er kaldhæðnislegt að á meðan menn eru að berjast bæði í stjórn og stjórnarandstöðu, atvinnulífinu og fleiri stöðum við að reyna að koma til móts við og lækka og leysa skuldavanda heimilanna er þau, hæstv. forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir og þeir hæstv. ráðherrar sem sitja í ríkisstjórninni, með svona ákvörðunum að auka greiðslubyrði heimilanna og stuðla að miklum gjaldahækkunum sem fara að sjálfsögðu beinustu leið inn í verðtrygginguna.

Menn eru heldur ekkert endilega búnir að leysa það hvernig þeir ætla að bjóða upp á valkosti varðandi verðtrygginguna af því að þeir þora það ekki. Það er nú hlutur sem hefur ekki beint mátt ræða hér. Þannig að verðbólga mun aukast við tillögur ríkisstjórnarinnar sem mun stuðla að því að skuldir heimilanna munu ekki minnka, eins og ég hefði nú alla jafna ætlað að ríkisstjórn Íslands ætti að vinna að, heldur hækka við þessa leið ríkisstjórnarinnar.

Svo er sárt að sjá ýmsar tölur, svo ég víki að öðrum þætti sem er gríðarlega mikilvægur. Að sjá hagvaxtarspár okkar helstu stofnana varðandi 2011, 2012 og 2013. Það er sama hvort við lesum Seðlabankann eða Hagstofuna, við sjáum spár um breytingar á vægri landsframleiðslu í þá veruna að hún er alls staðar að minnka. Hagvöxtur er sem sagt alls staðar að dragast saman og af hverju er það? Það er einmitt það sem fleiri ræðumenn hafa komið inn á, m.a. hv. þm. Ragnheiður Elín Árnadóttir. Það er út af þeim glötuðu tækifærum sem hafa siglt hjá meðan ríkisstjórnin hefur verið að gera eitthvað allt annað.

Ég ætla ekki að koma hingað og segja að allt sem ríkisstjórnin hafi gert sé alveg kolrangt. Ég ætla ekki að segja það. Mér hefur þótt sárast að sjá tækifæri fara forgörðum, að ákvarðanir voru ekki teknar strax í hruninu, í tengslum við hrunið og strax eftir hrunið eins og ríkisstjórninni í rauninni bar skylda til að gera. Það er svolítið kaldhæðnislegt að sjá, talandi um fundi í útlöndum og á fleiri stöðum, að þegar verið er að benda á góðan og þokkalegan árangur Íslands við að takast á við efnahagsmálin, (SER: Góðan.) já, þá eru þrír þættir nefndir til sögunnar. Í fyrsta lagi eru það neyðarlögin, að þau hafi m.a. komið Íslandi í skjól. Já, en hverjir tóku þátt í að afgreiða það? Það var ekki annar ríkisstjórnarflokkurinn og fyrrum fjármálaráðherra landsins Steingrímur J. Sigfússon sem tók þátt í því. Alls ekki, studdi það ekki. Studdi sami flokkur meðal annars annað atriði sem var lykilatriði og er alltaf nefnd á erlendri grundu á okkar fundum, samvinnuna við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn? Nei, heldur betur ekki. Hvert var þriðja atriðið sem menn tala um, og skipti líka sköpum varðandi það að við höfðum aðeins betri grunn að standa á til að takast á við gríðarlega erfiðleika í ljósi efnahagshrunsins? Það var að ríkissjóður var skuldlaus. Ég veit ekki hversu margar umræður ég hef átt í þinginu um að reyna að stoppa af útlánaþenslu og útgjaldaþenslu þáverandi stjórnarandstöðu.

Það má svo sannarlega gagnrýna okkur sjálfstæðismenn fyrir að hafa stuðlað að auknum útgjöldum. Við fáum óspart gagnrýni, og eigum að fá gagnrýni m.a. frá okkar flokksfólki, í þá veru að við höfum kannski staðið að of miklum útgjöldum á sviði velferðarmála, t.d. á árunum 1999–2009. 80% aukning á sviði velferðarmála er að mínu viti fjármunir sem er vel varið. Það má samt gagnrýna að við höfum farið út í of mikla útgjaldaeyðslu á þeim uppgangstíma sem um ræðir. Mér segir svo hugur, og menn hafa talað um það, að þetta hafi verið algjört heimsmet í aukningu á svona skömmum tíma til velferðarmála.

Svo leyfir formaður fjárlaganefndar sér að koma hingað upp í pontu og segja að meðal annars hafi framhaldsskólarnir og háskólarnir verið skornir niður á þeim uppgangstímum. (Gripið fram í.) Þeir voru aldeilis ekki skornir niður en ég er fyrst manna að taka undir að ég hefði viljað sjá meiri útgjaldaaukningu í þá veru af því að fjárfesting í menntun er fjárfesting í hagvexti til framtíðar. Ég hefði viljað sjá meiri aukningu á því sviði en það varð tvímælalaust aukning. Við vorum í 0,8% í framlögum til háskólamála miðað við þjóðarframleiðsluna árið 2003. Árið 2009 vorum við komin upp í 1,2%, ríflega 50% hækkun. Fínt, en það er bara ekki nóg. Ég viðurkenni fyrst manna að það er ekki nóg en þróunin var samt engu að síður þannig að bætt var jafnt og þétt í háskólana og framhaldsskólana. Það hefði átt að gera betur, að sjálfsögðu.

Ég vil líka benda á að það voru gerðir gríðarlega miklir rannsóknarsamningar, bæði við Háskóla Íslands og síðan við samkeppnissjóðina, við Rannís. Hvað var það fyrsta sem ríkisstjórn Íslands gerði, félagshyggju- sósíalistastjórnin? Það var að skera niður meðal annars samninginn við Háskóla Íslands og ýmsa rannsóknarsjóði. Þótt hún reyndi að halda ákveðinni verndarhendi yfir hluta af þeim var það bara ekki nóg. Þar var pólitísk forgangsröðun skýr. Mjög skýr.

Önnur mjög skýr forgangsröðun ríkisstjórnar Íslands varðandi menntamálin var — og það er kaldhæðnislegt og í rauninni sárgrætilegt að horfa upp á að í dag koma fram skýrslur sem virðast vera til að þjóna einhverjum pólitískum metnaði hjá ákveðnum þingmönnum, sem er bara fínt. Skýrslurnar segja að það eigi að stytta námstíma til stúdentsprófs og efla iðn- og starfsnám. Ég held að frú forseti hafi nú heyrt þær setningar áður. Það var nákvæmlega það sem allur þingheimur stóð fyrir í mörg ár: Að vinna að og samþykkja heildstæða skólalöggjöf leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Svo ég tali nú ekki um háskólana eða að sameina háskóla til að efla kennaramenntun, til að efla samfelluna. Fyrst og fremst var farið í þær breytingar á sínum tíma, og klárað af hálfu allra stjórnmálaflokka 2008, til að vinna að þremur markmiðum.

Það er eins og „groundhog day“ að hlusta á að efla þurfi iðn- og starfsnám og stytta námstímann þegar liggur fyrir að þingið vildi gera það. Það var samþykkti hér fyrir fimm árum og breytingarnar á skólalöggjöfinni áttu að fela í sér þrennt: Að vinna gegn brottfalli í framhaldsskólunum af því það er langmest á Íslandi. Allir voru mjög meðvitaðir um það og var unnið mjög samviskusamlega að því í mörg ár. Ég get nefnt, og hef áður nefnt, frábæra skólamenn sem voru í þinginu, Hjálmar Árnason og Einar Már Sigurðarson komu að þessu og aðrir sem stuðluðu að því að fara í verkefnið með ýmsum fleirum og koma í veg fyrir brottfall, efla iðn- og starfsnám og ekki síst að stytta námstíma til stúdentsprófs. Gera kerfið skilvirkara. Við samþykktum það öll en hvert er fyrsta verkefni ríkisstjórnar Íslands í menntamálum þegar hún kemur að þeim? Ég vil ekki áfellast hæstv. menntamálaráðherra eingöngu fyrir þetta. Hún fékk einfaldlega ekki pólitískan stuðning samstarfsflokksins til þess að keyra í gegn og segja: Við ætlum að forgangsraða í þágu menntunar. Við ætlum að forgangsraða í þágu rannsókna og vísinda.

Það þýðir ekkert að koma fólkinu bara inn í háskóla. Það þarf að hugsa um grunninn og við gerðum það í fimm ár. Við byggðum upp þessa skólalöggjöf einmitt til að gera okkur samkeppnishæfari og nýta fjármagnið betur, koma í veg fyrir brottfall og stuðla að því að efla iðn- og starfsnám. Hvað gerir ríkisstjórnin? Hún frestar gildistöku nákvæmlega þeirra ákvæða í skólalöggjöfinni sem stuðla að því að efla iðn- og starfsnám, að því að við getum komið í veg fyrir þetta mikla brottfall og sem koma að því að byggja upp tækifæri til að stytta námstíma til stúdentsprófs.

Því frestaði ríkisstjórn Íslands til 1. ágúst 2015 af því að það kostaði. Það kostaði í byrjun. Hluti af þeim kostnaði er kominn inn núna af því að þeim lögum fylgdi Vinnustaðanámssjóður. Hann kom ekki inn á fyrstu árum þeirrar ríkisstjórnar. Hann var að komast á núna, væntanlega af því að það eru kosningar á næsta vori.

Það átti allt að gera strax. Það var kostnaður í upphafi og við áttum að fara strax í að setja fjármagn inn í framhaldsskólana eins og við vorum búin að tala um í mörg ár. Það var ekki gert af því að vinstri stjórnin forgangsraðaði vitlaust. Menntamálaráðherrann hafði ekki nægan stuðning til að fara í þær mikilvægu breytingar. Ég sé líka að menn hafa eitthvað verið hræddir við að fara í breytingarnar af því að framhaldsskólakennarar yrðu ekki hressir með það.

Fyrirgefið, þetta var búið að samþykkja á þingi. Það var búið að fara í stórfellt samstarf og samráð við kennarasamtökin og átti bara að keyra það í gegn. Við hefðum þá staðið frammi fyrir mikilli hagræðingu í skólakerfinu og ég segi: Ríkisstjórn Íslands frestaði því að taka á vandanum varðandi brottfallið. Ríkisstjórn Íslands frestaði því að byggja upp iðn- og starfsnám. Það liggur allt fyrir, öll tækin eru til staðar. Hún forgangsraðaði ekki í þágu menntamála. Þess vegna er hlægilegt og beinlínis ömurlegt að hlusta á meðal annars forustumenn ríkisstjórnarflokkanna með formann fjárlaganefndar í broddi fylkingar koma upp og segja að skorið hafi verið niður til framhaldsskóla á sínum tíma. Það er rangt. Menn fóru í stórfellda uppbyggingu í samstarfi allra flokka og síðan var ekki staðið við það samstarf.

Það kalla ég dæmi um ranga forgangsröðun hjá ríkisstjórn sem gerði í rauninni ekkert annað í þeim málum en að pissa í skóinn sinn. Við værum komin þremur árum á undan því sem við erum núna en ríkisstjórnin frestaði því um fimm ár. Við erum að ýta vandanum varðandi brottfall og iðn- og starfsnám enn og aftur fram í tímann. Skólarnir fengu tækifæri með nýju lögunum til að móta námsbrautir, m.a. til að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda og ólíkar þarfir viðskiptalífsins og atvinnulífsins. Við sáum fram á mismunandi og ólík stúdentspróf til að koma til móts við ólíkar þarfir og mismunandi hæfileika einstaklinga.

Við vissum að það kostaði en við vissum líka að það mundi skila sér í sterkari einstaklingum, hæfara og samkeppnishæfara skólakerfi til lengri tíma og ekki síst í hinu alþjóðlega samhengi, að við getum farið að útskrifa nemendur á sambærilegum tíma og aðrar þjóðir. Nei, svo kemur ríkisstjórnin núna, eða einhverjir hv. þingmenn hennar, og kynna mjög göfugar og fínar, nýjar tillögur. Fyrirgefið, þingið er búið að taka afstöðu til þessa máls og þingið sagði 2008: Við eigum að keyra á að forgangsraða í þágu framhaldsskólans, í þágu iðn- og starfsmenntunar og í þágu þess að geta barist gegn brottfalli. Þessi ríkisstjórn stoppaði það þannig að ég segi að það sé sárt að sjá svona áherslur í því pólitíska plaggi sem fjárlögin eru.

Þá segja menn: Bíddu, hvar á að fá peninginn? Á ég að þurfa að tala um Vaðlaheiðargöng? Á ég að fara að minnast á þau? Það er mýgrútur af málum. Menn hafa meðal annars talað um ferli, sem ég er algjörlega sannfærð um að við eigum að vera í af því að það er til lengri tíma, framtíðarmál, en það er hægt að tala um aðrar stofnanir.

Ég vil til dæmis benda á Ríkisútvarpið. Ég tel að núna eftir mikla umfjöllun, og ég vil sérstaklega draga fram að vinnan innan allsherjar- og menntamálanefndar hefur verið mjög góð, hafi allir nefndarmenn skilning á því að það þurfi að skerpa enn frekar á hlutverki Ríkisútvarpsins. Það þarf að vinna ákveðna hluti betur. Ég verð að viðurkenna, eftir að hafa komið töluvert að þeim málum, að það hefur ekkert endilega verið farið nákvæmlega þær leiðir sem maður hefði helst kosið. Ég leyni því ekki og hef alltaf sagt, m.a. í ræðustóli, að það hefði átt að takmarka Ríkisútvarpið á auglýsingamarkaði.

Ég er enn þeirrar skoðunar, sérstaklega í ljósi þess að núna spretta upp fjölmiðlar, ekki síst á vefmiðlunum, sem þurfa að hafa tækifæri til að lifa og þeir gera það ekki öðruvísi en að hafa auglýsingar. Ég hefði viljað sjá miklu meiri og skarpari áherslur af hálfu Ríkisútvarpsins. Það er ekki verið að gera með þessu. Ég tel að Ríkisútvarpið geti rekið sig með mun markvissari hætti. Ég er ekki að segja það, og ég vil benda á að Ríkisútvarpið er rekið hagstæðara í dag en hefur verið gert áður í langri sögu þess, en ég tel að það þurfi ekki á svona miklum fjármunum að halda. Þeir fjármunir sem Ríkisútvarpið þarf, og á að fá á, eiga að beinast fyrst og fremst að því halda uppi þeirri öflugu fréttastofu sem þar er, sinna fréttaþjónustuhlutverkinu, fréttamiðlun og síðan eigum við að sjá öflugt heimildarefni, efni frá sjálfstæðum framleiðendum. Við eigum að forgangsraða í það innan Ríkisútvarpsins og þá verður einfaldlega að skera annað niður. Þar er hægt að benda á hluti.

Ég vil líka benda á af því að við erum núna í miðri umræðu um stjórnarskrána, og ég ætla ekki að fara út í langar stjórnarskrárumræður hér, að allt það ferli hefur ekki bara kostað einhverja tugi millj. kr. heldur meira en milljarð, á annað þúsund milljónir kr. Ég er sannfærð um að ef verið hefði pólitísk forusta í landinu værum við að ræða ákveðnar efnisbreytingar á stjórnarskránni sem hugsanlega hefðu getað tekið gildi í vor. Það hefði ekki kostað neinar þúsund milljónir eða tvö þúsund milljónir. Aldrei, en það vantaði þá pólitísku forustu. Út af því að við stöndum frammi fyrir því pólitíska forustuleysi kostar það þjóðarbúið gríðarlega fjármuni í verklagi, að mínu mati í ákveðinni stefnu sem lýsir sér í þeim árásum á atvinnulífið sem ég gat um í upphafi ræðu minnar.

Ég vil ekki alveg hætta að tala um menntakerfið af því að allt þetta kjörtímabil hefur það legið ljóst af hálfu okkar sjálfstæðismanna að við vildum forgangsraða í þágu menntunar og rannsókna af því að við vitum að fjárfestingin mun síðan skila okkur. Það er fjárfestingin í því að reyna að efla hagvöxt að nýju. Ríkisstjórnin er ekki beinlínis að gera það með sinni stefnu varðandi atvinnulífið sem slíkt.

Síðan horfum við upp á ákveðnar pólitískar kreddur innan vinstri stjórnarinnar varðandi háskólana á Íslandi. Við höfum náttúrlega gríðarlega sterkan háskóla sem er Háskóli Íslands og það er alveg ótrúlega merkilegt og gaman að fylgjast með því að hann hefur tvö ár í röð náð inn á lista yfir 300 bestu háskóla í heimi. Það sem vekur mann hins vegar til umhugsunar, af því að forgangsröðunin hefur ekki verið í þágu háskóla og rannsókna, eru birtingar á vísindagreinum. Þær hafa stuðlað að því að við höfum komist inn á listana og meðal annars hækkað núna á þessu ári, komist ofar á listana. Birtingar á vísindagreinum eru, frú forseti, eins og við þekkjum, meðal annars lykillinn að því að við getum skorað hátt á svona listum. Fjárfesting í rannsóknum skiptir okkur því gríðarlega miklu máli og við erum að tala um að þær birtingar voru á árunum 2008–2009.

Eftir það hefur verið skorið niður og þess vegna er ég hrædd um árangur sem við höfum náð á hinum ýmsu sviðum innan háskólanna. Ég get nefnt heilbrigðisvísindasvið sem dæmi. Þar liggur alveg ljóst fyrir að við höfum náð gríðarlegum árangri og ég minnist þess að hafa séð viðtal við Björn Zoëga þar sem hann lýsir yfir miklum áhyggjum af þróuninni sem á sér stað varðandi framlög til rannsókna og vísinda. Þarna finnst mér einfaldlega vanta skýra framtíðarsýn og skilning í þá veru að umbótastjórnun skili sér ekkert endilega strax en hún skili sér til lengri tíma litið. Við höfum þurft að fara í gegnum ákveðið umbótatímabil. Við gerðum það með því að reyna að fara í uppstokkun á menntakerfinu. Við vissum að það mundi kosta til að byrja með en mundi síðan skila sér.

Þess vegna er ég oft að draga það fram að mér finnist sárt að sjá að eftir alla þá vinnu og allan þennan þverpólitíska skilning á því að fara í þessa umbótastjórnun, breytingastjórnun á menntakerfinu sem kostaði í upphafi, skuli því einfaldlega vera kastað fyrir róða, alla vega fram til ársins 2015. Við hefðum getað farið að sjá fram á hagvöxt mun fyrr ef við hefðum farið strax í þetta.

Ég talaði um pólitískar kreddur og ég er búin að tala um Háskóla Íslands sem hefur að sjálfsögðu staðið sig gríðarlega vel. Það er ótrúlega gaman að sjá hann undir forustu Kristínar Ingólfsdóttur háskólarektors sem hefur farið fyrir því mikla skipi af gríðarlega hæfileikaríku fólki. Ég vil líka benda á aðra skóla eins og Háskólann í Reykjavík sem var og hefur sérstaklega verið að sinna tæknigreinum, hlutfallslega umfram aðra háskóla. Þar er verið að skera hlutfallslega mest niður.

Ef það er þannig að vinstri stjórnin vilji ekki einkaskóla — og það kemur ekkert á óvart af því að ég hef átt svo mörg samtöl við þau sem sátu í ríkisstjórninni á fyrri árum sem vildu einfaldlega ekki einkaskóla og þau sitja núna í ríkisstjórn — er einfaldlega hreinna að segja það beint út í staðinn fyrir að draga úr þeim kraftinn á löngum tíma eins og virðist vera í tilfelli Háskólans í Reykjavík. Að segja bara: Heyrðu, við erum ekki sammála því að reka skóla á einkarekstrarlegum grunni og þess vegna ætlum við að skera niður á því sviði. Mér þætti það einfaldlega hreinlegra og það kæmi mér ekkert á óvart komandi úr ranni þessa fólks sem situr í ríkisstjórn. Ef menn ætla hins vegar að halda áfram að styðja þá skóla sem eru merkilegir fyrir margra hluta sakir, ekki bara Háskólinn í Reykjavík heldur getum við talað um Háskólann á Bifröst og Listaháskóla Íslands, verðum við einfaldlega að styðja við þá og taka pólitískar ákvarðanir, erfiðar að mínu mati, um enn frekara samstarf og hugsanlega sameiningar.

Það þýðir ekki að fara þá leið til dæmis í tilfelli Háskólans í Reykjavík þar sem verið er að draga kraftinn úr skólanum sem hefur verið að sinna verk- og tæknimenntun, hlutfallslega meira en aðrir skólar. Það skýtur svolítið skökku við að á sama tíma og skýrslur koma út um að efla iðn- og starfsnám er verið að draga tennurnar úr skólanum sem er þó að reyna að byggja þetta upp.

Það rekur sig hvað á annars horn í þeim tillögum sem liggja fyrir um fjárlögin. Ég vil í lok ræðu minnar, og ég vil biðja um að ég verði sett á mælendaskrá aftur, sérstaklega geta um einn þátt sem mér hefur þótt mjög sérstakt að upplifa. Það eru breytingarnar sem hafa orðið á úthlutunum varðandi safnliðina. Þegar ég var í fjárlaganefndinni í hittiðfyrra fórum við í gagngerar breytingar á úthlutunum varðandi safnliðina. Það var ágætissamhljómur en hann var ekki alger, það er best að draga það fram. Það voru ekki allir þingmenn sammála því og vildu halda því áfram innan fjárlaganefndar.

Við vorum nokkur í starfshópi sem fórum með það áfram. Við reyndum að setja það inn í farveg, sem má kalla faglegan, til að reyna að gera þetta skýrara og gegnsærra svo það væri ekki háð duttlungum, vil ég segja, ýmissa eftir því hvernig kjördæmin eru mönnuð í fjárlaganefndinni hverju sinni, að úthlutunin yrði þá ekki í samræmi við það. Það tókst þar til núna. Af hverju fellur sú tilraun um sjálfa sig? Af því að ríkisstjórnin og ríkisstjórnarflokkarnir sjálfir koma með beinar tillögur inn í safnliðina sem stuðla að því að þeir eyðileggja það ferli sem við vorum þó að reyna, greinilega af veikum mætti, að byggja upp. Kerfi sem hafði verið gagnrýnt árum saman en þingmenn vilja engu að síður ekki breyta. Við náðum því samt, við komum með tillögur og vissum að það var ekki fullkomið kerfi. Það þyrfti að fylgja því eftir, gæta að því að ráðuneytin fylgdu því eftir sem vilji þingsins stóð til að setja inn í það ákveðna, skýra ferli.

Ég get sem dæmi tekið safn á Austurlandi sem ríkisstjórnin ákveður að styrkja sérstaklega. Ég er ekkert á móti því að styrkja Ríkharðssafnið en hefði ekki verið betra að setja það bara beint inn í menningarsamninginn? Hefði ekki verið skynsamlegri leið, ef menn ákveða að auka fjármagn til þeirra verkefna, að setja það beint inn í menningarsamninginn? Eða er þetta sem sagt þannig, og það væri ágætt að fá það skýrt síðar í umræðunni, að við erum komin aftur á það stig að fjárlaganefndin sérstaklega ætlar að fara í að úthluta verkefnum eftir því sem henni hentar og menn hafa tengsl inn í nefndina?

Mér finnst það miður, mér finnst það gamaldagsvinnubrögð. Ég hef heyrt í þeirri nefnd sem ég er í að menn eru ekkert allt of sáttir með þá þróun. Þess vegna er grautfúlt að sjá að ríkisstjórnarflokkarnir sjálfir, og það væri forvitnilegt að heyra viðhorf fyrrverandi fjármálaráðherra, hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur um það, hafa kollvarpað tilraun okkar til að gera það gegnsærra og auka jafnræði allra landsmanna í þeim efnum.

Að öðru leyti er margt sem þarf að ræða og fara betur yfir. Það eru ýmis mál sem tengjast mínu kjördæmi en ekki síður þeirri stóru mynd sem við okkur blasir varðandi fjárlögin. Ég held að það sé glapræði fyrir alla stjórnmálaflokka að tala um að næstu fjögur ár verði einhver gósentíð. Það er ekki þannig. Öll teikn á lofti bera þess merki að það verði áfram miklir erfiðleikar fyrir íslenskt efnahagslíf. Það þarf að sýna aðhaldssama fjármálastjórnun, aðhaldssemi sem við sjáum ekki í fjárlagafrumvarpinu. Af hverju ekki? Jú, af því að myndin er algjörlega óljós. Það er (Forseti hringir.) allt of mikið af eyðum hér inni til að við (Forseti hringir.) þingmenn getum tekið almennilega efnislega afstöðu til frumvarpsins.