141. löggjafarþing — 43. fundur,  30. nóv. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[15:53]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Björn Valur Gíslason) (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og sér í lagi fyrri hluta ræðunnar sem var málefnaleg og vel fær til rökræðu, sá hluti þar sem hann fjallaði um stofnanir utan heimilda, ábyrgð forstöðumanna og slíkt sem ég held að ég og hv. þingmaður séum hjartanlega sammála um. Árin 2008 og 2009 voru svona um það bil 100 stofnanir sem fóru umfram fjárlög ríkisins á hverju ári samkvæmt skýrslu sem þinginu barst þar um. Árið 2011 voru þær komnar niður í 20, þeim hafði fækkað verulega með ýmsum aðgerðum. Einhverjir forstöðumenn fengu yfirfrakka á sig, þ.e. tilsjónarmenn voru settir með rekstri stofnana. Reynt var að gera það í fleiri tilfellum. Alþingi mótmælti hástöfum að það yrði gert og meðal annarra flokksmenn og flokkssystkini hv. þm. Péturs H. Blöndals, þegar það var reynt.

Það hefur því með ýmsum hætti verið reynt að koma böndum á rekstur stofnana og taka á þeim og með ásættanlegum árangri að því er ég held. En það má ganga miklu lengra í því, ég er algjörlega sammála hv. þingmanni hvað það varðar.

Við erum einnig sammála um agann sem þarf að vera á ríkisfjármálunum. Það var náttúrlega ekki síst agaleysi og stjórnleysi sem kostaði okkur þá stóru bita og beisku sem við erum að reyna að kyngja núna. Áætlanagerð fyrr var skelfileg, um það þarf ekkert að deila, gögn liggja fyrir um það. Áætlanagerð nú er miklu betri en hún hefur áður verið, miklu betri. Það kemur fram í fjáraukalögum, það kemur fram í fjárlagagerðinni og það kemur fram í allri útgjaldastýringu ríkisins. Hún má vera betri og þarf að vera betri, ég er algjörlega sammála því.

Er hv. þingmaður sammála mér í því að árangur hafi náðst á þessu (Forseti hringir.) sviði í ríkisfjármálum?