141. löggjafarþing — 43. fundur,  30. nóv. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[15:57]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Björn Valur Gíslason) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það getur verið skoðun þingmannsins að það eigi þá bara að reka menn en sú leið hefur ekki verið farin enn þá. Árangur hefur náðst með öðrum aðferðum en hann þarf að vera betri, við erum algjörlega sammála um það.

Íbúðalánasjóður — þar er ekki verið að fela nokkurn skapaðan hlut. Það var ekkert hægt að fela þá 33 milljarða sem settir voru inn í hann 2010 og til hvers í ósköpunum hefði átt að gera það? Hvaða ástæðu hef ég til að reyna að fela það að verið sé að setja fjármuni inn í Íbúðalánasjóð? Mér dettur bara engin ástæða í hug. Hvaða ástæða gæti verið fyrir því að því ætti að leyna að Íbúðalánasjóður er svo illa staddur að fyrsta kastið þurfi að setja inn í hann 13 milljarða, á næsta fjárlagaári? Það blasir algjörlega við að það þarf að vera meira. Það er enginn að tala um að leyna því. 13 milljarðar á næsta ári er lágmarkstala vegna þeirra björgunaraðgerða sem þarf að fara í til að halda Íbúðalánasjóði á floti. Þetta er opinber tala, um þetta hefur verið rætt. Ég reikna með að fjárlaganefnd muni gera tillögu um þetta við 3. umr.

Það er enginn feluleikur í gangi heldur er þvert á móti lögð mikil vinna í að greina stöðu Íbúðalánasjóðs til að komast að því hver vandinn er, hvernig þarf að bregðast við honum og hvað hann kostar. Þetta er að verða ein af langstærstu afleiðingum hrunsins, það er Íbúðalánasjóður. Hann er þegar búinn að kosta okkur um 50 milljarða. Við erum að tala um að setja — það er kannski óábyrgt að nefna einhverja tölu í viðbót en það kæmi mér ekki á óvart þó að Íbúðalánasjóður ætti eftir að kosta okkur skattgreiðendur 70–80 milljarða þegar upp verður staðið. Þetta er óábyrg tala en það kæmi mér ekki á óvart að þannig færi. Það er ekki verið að fela nokkurn skapaðan hlut í því.

Hefur hv. þingmaður einhverjar aðrar tillögur um það hvernig bregðast eigi við stöðu Íbúðalánasjóðs? Er hægt að bregðast við vandanum á annan hátt en rætt hefur verið um að undanförnu?