fjárlög 2013.
Virðulegi forseti. Ég er alveg sammála hv. þingmanni þegar kemur að aldursreglum. Það er engin ástæða til að ýta fólki af vinnumarkaði ef það getur unnið. Það er óréttlátt og í rauninni ósiðlegt.
Hins vegar þegar við erum að tala um heimilislækna og förum aðeins í söguskoðun, sem skiptir engu máli, þá kom Sighvatur Björgvinsson tilvísanakerfinu á en Framsóknarflokkurinn afnam það. Það var bara gert á sínum tíma og við getum verið þeirrar skoðunar að það hafi verið mistök, en starfsumhverfi heimilislækna hefur ekki verið nógu spennandi. Kannanir og annað slíkt hafa leitt það í ljós.
Við erum með ágætismódel, eins og í Salahverfinu og annars staðar, sem væri skynsamlegt að þróa og nefnd á vegum Guðjóns Magnússonar vann tillögur sem ég átti eftir að framkvæma, mér var hent út úr ráðuneytinu áður en mér tókst að koma því áleiðis, og við þurfum að líta til þeirra.
Þetta er fín umræða en mér finnst ekki rétt að tala um tilvísanakerfi þegar við vitum að við getum ekki komið því á því að það er fullkomlega ómögulegt eins og staðan er núna. (Forseti hringir.)
Síðan varðandi lífeyrissjóðina, hv. þingmaður fer kannski aðeins yfir það mál á eftir.