fjárlög 2013.
Virðulegi forseti. Ég get einfaldlega ekki tekið undir það með hv. þingmanni að ómögulegt sé að koma tilvísanakerfi á. Þetta er fyrst og fremst spurning um að taka ákvörðun um að koma því á og byrja síðan að vinna að því að taka þau skref sem nauðsynleg eru til að innleiða það. Eins og ég nefndi er svo mikilvægt að við séum ekki föst í formsatriðum, að þessi stétt megi bara gera þetta og hin stéttin megi bara gera hitt. Við í velferðarnefnd, þ.e. þegar ég sat þar og sit núna sem varamaður, höfum líka lagt áherslu á mikilvægi þess að horfa bæði á líkamlega og andlega heilsu. Innan heilsugæslustöðvanna ætti fjölbreytt teymi af heilbrigðisstarfsmönnum að mæta sjúklingum til að taka á þeirra málum og vísa þeim síðan áfram til sérfræðilækna ef það þykir nauðsynlegt.
Varðandi lífeyrissjóðina þá er ég ekki að tala um Framtakssjóðinn. Framtakssjóðurinn er að fjárfesta í stórum öflugum fyrirtækjum. Það er engin nýsköpun þar. Það sem nefnt er í McKinsey-skýrslunni (Forseti hringir.) er möguleikinn á því að setja ákveðið hlutfall af fjármagni í áhættufjárfestingar því að þannig dreifðu lífeyrissjóðirnir í raun áhættunni (Forseti hringir.) þar sem þeir væru þá að fjárfesta í fjölbreyttari fjárfestingarkostum.