fjárlög 2013.
Virðulegi forseti. Ríkissjóður sem er jafnskuldsettur og sá sem við ræðum um er því miður í engum færum til að auka útgjöld sín, hvort sem það heitir barnabætur eða eitthvað annað. Auðvitað viljum við öll hækka, breikka og bæta í. Við viljum hafa velferðarkerfið okkar þannig að þeir sem þurfa á því að halda líði ekki skort. Auðvitað er það svo en til að það sé hægt þarf að vera hagvöxtur og framleiðniaukning. Það má ekki vera verðbólga og það mega ekki vera gjaldeyrishöft. Fjárlagafrumvarpið verður að hjálpa til og vera þáttur í því að leysa vandamálin sem uppi eru. Óskalistar um að gera einhvern veginn allt fyrir alla, ég tala nú ekki um á kosningaári, munu ekki ganga upp. Við heyrum hvað menn segja á vinnumarkaði. Við heyrum hvað forseti Alþýðusambandsins segir. Við heyrum hvað framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir. Eiga menn ekki að hlusta á það? Vissulega hafa menn verið að reyna að bæta úr tæknilegum frágangi frumvarpsins á þinginu en tæknilegur frágangur hjálpar ekki fólkinu í landinu. Það gerir mönnum ekki auðveldara með að borga skuldirnar sínar og borga reikningana en það getur auðvitað hjálpað okkur þingmönnum að fást við það.
Ég verð þó að segja úr því hv. þingmaður nefnir til dæmis afgreiðslu á fjáraukalögum að við höfum verið að ræða dæmi eins og Sparisjóð Keflavíkur, Íbúðalánasjóð og aðra þætti sem augljóslega hafa fallið til á viðkomandi fjárlagaári og hefði átt að taka inn í fjáraukalög. Í það minnsta hluta þar sem lá fyrir, eins og til dæmis í tilfelli Sparisjóðs Keflavíkur, að það ætti að gera en var ekki gert til að láta fjáraukalögin líta betur út. Síðan er því skellt inn í ríkisreikning eftir á. (Forseti hringir.) Virðulegi forseti. Það er reyndar víða pottur brotinn í því ferli öllu saman.