141. löggjafarþing — 43. fundur,  30. nóv. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[20:42]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Út af orðaskiptum hv. þingmanna á undan þegar þeir töluðu um hvernig erlendir fjárfestar, eða yfir höfuð allir fjárfestar, eru boðnir velkomnir, er ágætt að rifja upp þegar hæstv. forsætisráðherra stóð á tröppum Stjórnarráðsins og sagði að þótt þau fyrirtæki sem væru að fjárfesta hérna færu eftir íslenskum lögum kæmi auðvitað vel til greina að þjóðnýta þau. Það segir kannski allt um viðhorf stjórnvalda og skilningsleysi þeirra á því að umgangast fólk og fjárfesta með þeirri virðingu sem þarf.

Mig langar að spyrja hv. þingmann. Hann kom ágætlega inn á það í ræðu sinni sem snýr að því að margir hv. stjórnarliðar töluðu um að nú væru viðreisnin og viðspyrnan hafin og árangur færi að sjást. Í okkar kjördæmi í Snæfellsbæ er verið að loka heilsugæslustöðinni aðra hverja helgi. Það er ekki eins og hún sé full af fólki um helgar heldur er einungis læknir á bakvakt og ugglaust sjúkraflutningamennirnir og þar fram eftir götunum. Íbúunum í sveitarfélaginu, sem eru tæplega 1.800, er gert að sækja heilsugæsluþjónustu til Grundarfjarðar. Hún er mjög fín en því miður eru veður oft válynd og ófært á milli staða. Það eru skilaboðin og þannig upplifa stjórnarþingmenn væntanlega viðreisnina eða viðspyrnuna. Þetta er gert í samráði við velferðarráðuneytið sem auðvitað segir manni hvers konar skilningsleysi er á hlutunum. Er hv. þingmaður sammála mér um að þegar svona er komið fram við fólk sem vinnur á svæðunum og búið er að taka af því grunnþjónustuna líti það auðvitað á sig sem vinnudýr fyrir ríkissjóð? Það er ekkert öðruvísi. Ég vil spyrja hv. þingmann: Er hann sammála mér um það að þegar búið er að taka sjálfa heilsugæsluna af fólkinu þarf yfir höfuð ekkert að veita neina þjónustu á svæðinu?