fjárlög 2013.
Frú forseti. Við ræðum hér fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar í 2. umr. og nefndarálit sem fylgt hafa. Þegar maður skoðar þetta er verið að tala um 100 millj. kr. inn á þennan og hinn liðinn, og þykir gott. En svo koma allt í einu stóru tölurnar. Það er Íbúðalánasjóður, 13 milljarða þarf þar minnst, áður voru settir inn 33 milljarðar. Það eru alvörutölurnar, frú forseti, og bliknar þá allt hitt, bara eins og snjóbráð, við hliðina á.
Ég minni á að Sjóvá — ríkisábyrgð þar eða ímynduð ríkisábyrgð — kostaði 5 milljarða. Sparisjóður Keflavíkur 20 milljarða; ein ákvörðun og ekki einu sinni í fjárlögum eða fjáraukalögum. Það er ekki talað um það, bara borgað. Gaman að sjá hvernig það fer saman við stjórnarskrána. Ég ræddi það hér fyrr í kvöld, ég ætla ekki að fara dýpra ofan í það. Lánasjóður landbúnaðarins, þar eru 27 milljarðar. Þarna eru safaríku stóru tölurnar. Svo er það Íbúðalánasjóður, eins og ég gat um, 13 milljarðar en þarf sennilega að fara upp í 48 milljarða eftir því hvernig landið liggur.
Það er svo athyglisvert, frú forseti, að árið 2004 hélt ég ræðu og varaði við því að vextir gætu lækkað. Ég veit ekki hvort hægt er að kalla það skemmtilegt en ég nefndi einmitt 2%, að raunvextir gætu farið niður í 2%. Það vill svo til að þeir eru einmitt þar núna.
Árið 1997 var verið að ræða um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins og aðlögunarsamninga ríkisstarfsmanna, að þeir væru með mjög lág dagvinnulaun og stór hluti af launum þeirra væri ekki tryggður — en það sem var tryggt var vel tryggt. Þá var stofnuð B-deild og þá var stofnuð A-deild, og ég varaði eindregið við því líka. Ég flutti breytingartillögu, rökstuddi hana og ræddi hana og barðist fyrir henni í þingflokknum og úti um allt og mér var kerfisbundið haldið utan við það, frú forseti. Þá sagði ég þingflokknum, ég minnist þess, að þetta mundi kosta 40 milljarða, sem var óskaplega há tala þá. Því miður gerði ég stór mistök vegna þess að í dag stendur þessi skuldbinding í 400 milljörðum, skuldbinding Lífeyrissjóðs ríkisins vegna B-deildar LSR. Svo er náttúrlega svona smotterí hér við hliðina á eins og Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga, þar eru það 57 milljarðar. Og svo er það A-deildin, frú forseti, sem á í raun að vera sjálfbær og var sett upp þannig, þar eru komnir 57 milljarðar. Ég hef verið með gamlar tölur þegar ég hef verið að ræða þetta, var með 47 milljarða, það munar nú ekki nema 10 milljörðum en það er talan frá því í fyrra. Hún hefur sem sagt hækkað um 10 milljarða þessi skuldbinding á einu ári. Þarna eru stóru tölurnar, frú forseti. Það er ríkisábyrgðin og við þurfum að fara að passa okkur á ríkisábyrgð. Við þurfum bara að segja: Við veitum ekki ríkisábyrgð.
Hvar eru ríkisábyrgðir í dag? Menn hafa talað um að einhvers konar ábyrgð sé á innstæðum, þær eru reyndar 2.000 milljarðar, en ég hef nú fengið út úr fyrrverandi fjármálaráðherra, Steingrími J. Sigfússyni, að það væri ekki raunveruleg ríkisábyrgð heldur bara yfirlýsing ráðherra sem þeir ætla væntanlega að borga sjálfir, ég veit það ekki. En samkvæmt stjórnarskránni má ekki skuldbinda nema í fjárlögum eða fjáraukalögum. Þess vegna er ekki ríkisábyrgð á innstæðum. Þá er líka spurning hvort yfirleitt sé ríkisábyrgð á B-deildinni, það er nefnilega spurning.
Hvar víðar er ríkisábyrgð? Það er það sem ég ætla að nota lungann úr ræðu minni í, það er hjá Landsvirkjun, frú forseti. Nú er ég ekki með tölurnar allar á hreinu, ég náði ekki að vinna þau gögn. Ég held að eigið fé Landsvirkjunar sé um 200 milljarðar, skuldirnar séu um 400 með ríkisábyrgð. Þarna eru sem sagt 600 milljarðar undir sem geta farið illa. Ég ætla bara að nefna það hér, svo að ég geti vitnað í sjálfan mig eftir tíu ár, þegar Landsvirkjun verður farin á hausinn, vegna þess að allur rekstur er með áhættu. Það getur vel verið að það finnist einhver ný flott leið til að einangra ál út úr álmelmi, ál er þriðja algengasta frumefnið á jarðskorpunni, og ef það tækist að finna aðra leið en rafgreiningu, sem er ódýrari, væru öll þessi álver úrelt, öll í heiminum um leið. Öll raforkan sem hefur verið framleidd til þess að framleiða ál, hún yrði illseljanleg, frú forseti, það er bara þannig.
Á þessu öllu er ríkisábyrgð og það má ekki einu sinni nefna það, það má ekki einu sinni nefna það að selja Landsvirkjun. Það má ekki nefna það vegna þess að það er eitthvað heilagt, eitthvað auðlind eitthvað, eitthvað svoleiðis. Ég er nú eiginlega sammála því að ég vil ekki selja orkuna, ekki varanlega, en ég ætla að fara í gegnum það hvernig við getum selt hana án þess að selja hana varanlega, frú forseti. Ég hef nefnt það hér áður en ég ætla að fara í gegnum það enn einu sinni vegna þess að ég held að það sé mjög athyglisverð hugmynd sem menn ættu að skoða einmitt til þess að losna við þessa ríkisábyrgð á álframleiðslunni eða raforkuframleiðslunni til álframleiðslu, til rafgreiningar á áli, sem stóriðjan er aðallega á Íslandi. Það er reyndar pínulítið meira sem er til viðbótar en aðalnotkunin á raforku á Íslandi er vegna rafgreiningar á áli.
Ég ætla að nefna að stofnað verði hlutafélag, Kárahnjúkavirkjun 01 ehf. Ríkið mundi stofna það, það yrði bara svona venjulegt hlutafélag, og þetta félag fengi afnot af Jöklu í 40 ár, þ.e. af auðlindinni, fengi að nota hana í 40 ár. Það fengi jarðgöngin og virkjunina, stífluna og raflínurnar, samningana við álverið á Reyðarfirði, tæki yfir allar skuldir og ríkisábyrgð. Þarna stæði þá félag sem mætti nota þetta í 40 ár en yrði þá að skila öllu eins og það var, jarðgöngunum og öllu saman, skila því í sama ásigkomulagi.
Hvað gerum við svo, frú forseti? Við seljum Kárahnjúkavirkjun 01, við seljum það. Til hvers eiginlega? Til þess að flytja allan væntanlegan hagnað af þessari virkjun, af þessari framkvæmd, af auðlindinni, til dagsins í dag, við núvirðum hana í reynd. Og við gerum meira, við afléttum ríkisábyrgð á lánunum af því að sá sem kaupir tekur það yfir. Ef ekki semst um að aflétta ríkisábyrgðinni yrði borgað ríkisábyrgðargjald sem yrði nægilega mikið til þess að menn mundu leita leiða til að losna við hana, fara út úr því.
Síðan mundi þetta fyrirtæki starfa eins og einkafyrirtæki. Af hverju í 40 ár, frú forseti? Í ævi manns, einstaklings, fyrirtækis, eru 10 ár langur tími, mjög langur tími, 20 ár enn lengri tími og 40 ár eru nánast eilífð. Þeir sem keyptu þetta fyrirtæki mundu hugsa: Aha, ég get haft þetta fyrirtæki nánast um alla eilífð — frá þeirra sjónarhorni. En frá sjónarhorni þjóðarinnar eru 40 ár ósköp lítið miðað við þau þúsund ár sem við höfum búið á Íslandi, þessi þjóð, þannig að það yrði stuttur tími.
Hvað gerist svo, frú forseti? Svo líður tíminn og allt í einu kemur að lokum og þá þurfa menn að fara að gera upp öll tækin og tólin þannig að þessu verði skilað í sama ásigkomulagi og þá stofnum við Kárahnjúkavirkjun 02 ehf. Þá stofnum við næsta fyrirtæki sem gerir nákvæmlega það sama, tekur yfir Jöklu í 40 ár, tekur yfir samninga og stíflu og jarðgöng og allt þetta og virkjunina og línurnar og má hafa þetta allt í 40 ár, engar skuldir þá væntanlega því að þær eru farnar, og svo verður það selt aftur, það fyrirtæki yrði selt aftur. Og eftir 80 ár verður það selt í þriðja sinn o.s.frv. og aftur og aftur. Þeir sem hafa áhyggjur af því að þjóðin missi auðlindina sjá eins og skot að þjóðin missir ekki auðlindina þarna vegna þess að hún yrði seld aftur og aftur, þ.e. afnotin af henni.
Sama yrði gert með Þjórsárvirkjanir, sem ég mundi kalla Þjórsárvirkjanir 01 ehf. og það yrðu þá allar virkjanirnar í Þjórsá og þær yrðu seldar sem ein eining, væntanlega með höfuðstöðvar á Hellu eða eitthvað svoleiðis, er það er ekki þægilegt? Kárahnjúkavirkjun hefði að sjálfsögðu höfuðstöðvar fyrir austan, í Héraði. Það sama yrði gert, leigt til 40 ára og afnotin af auðlindinni, taka yfir allar virkjanir og alla samninga og allar skuldir og ríkisábyrgðina og svo yrði það fyrirtæki selt til 40 ára og aftur eftir 40 ár aftur og aftur.
Svo erum við með restina af Landsvirkjun, sem er þá væntanlega Sogsvirkjanirnar og sitthvað fleira hingað og þangað, og það yrði sett í eitt fyrirtæki sem mundi heita Sogsvirkjanir með höfuðstöðvar á Selfossi og það yrði þá selt sem rest.
Svipað mundum við gera við Rarik og svipað mundum við gera við Orkubú Vestfjarða. Þá hefur það nefnilega gerst að það eigið fé sem er í þessum fyrirtækjum, sem eru um það bil 250 milljarðar, rynni til ríkissjóðs. Hann fengi að minnsta kosti eigið féð. Og hann fengi meira. Hann fengi sennilega tvöfalt eigið fé vegna þess að ég hef grun um að hún sé töluvert mikils virði, þessi auðlind okkar. Þeir sem keyptu þetta mundu vera að borga fyrir afnotin af auðlindinni í 40 ár með allri þeirri áhættu sem því fylgir en líka hagnaðarmöguleikum. Ég minni til dæmis á kolefnismarkaðinn sem ég held að muni hækka verð á raforku á Íslandi gífurlega, sennilega 30–40%, hækka tekjurnar. þ.e. raforkan, ef kolefnislosun kemst á um allan heim. Þá mundi raforkuverð á Íslandi hækka, reyndar ekki gildandi samningar en í nýjum samningum. Þetta mundu menn taka inn í verðið á þessum fyrirtækjum.
Svo mundu menn að sjálfsögðu, frú forseti, huga að sæstreng og ekkert vera að dunda við það og vera að rífast við einhverja stjórnmálamenn um það hvort það sé skynsamlegt eða ekki, þeir mundu gera það strax. Þeir mundu gera það bara strax af því að ég held að sæstrengur sé mjög hagkvæmur og þá kannski aðallega vegna þess að hann mundi auka nýtingu á uppistöðulónum. Þegar þú mátt tæma lónið, þegar þú getur tekið áhættu af því að tæma lónið, t.d. af Kárahnjúkavirkjun, þá þarftu ekki að hafa yfirfall, þá þarftu ekki að láta fossinn Hverfanda, stærsta foss á Íslandi og gott ef ekki í heiminum, gervifoss sem myndast þar sem orkan steypist niður strax í september og er þannig í einhverjar vikur eða mánuði — algjör sorg að horfa á eftir orkunni þarna niður, algjör sorg. Það mætti því víkka göngin eða byggja göng við hliðina á og það mætti nýta yfirfallslónin miklu betur. Af hverju? Þegar stefnir í að þau séu að tæmast þá flytjum við nefnilega orku til baka í gegnum strenginn. Það er nefnilega málið. Fyrir utan að við getum notað alls konar dægursveiflur og annað slíkt á mörkuðum í Evrópu, á raforkumörkuðum, dægursveiflur og árssveiflur. Það er nefnilega miklu meiri notkun á veturna en á sumrin. Þetta gætum við notað í gegnum strenginn. Ég hugsa að strengurinn mundi borga sig upp á óskaplega stuttum tíma, kannski á einu eða tveimur árum.
Það sem mundi aðallega vinnast við þetta, frú forseti, er það að við losnum við ríkisábyrgðina og fengjum heilmikið fé í kassann. Og ef við erum skynsöm og erum ekki haldin einhverjum ótta eða fælni, útlendingafælni, mundum við að sjálfsögðu selja þetta til útlendinga til 40 ára. Þá kæmi inn góður og safaríkur gjaldeyrir til að bæta stöðu Íslands varðandi snjóhengjuna.
Ég held að menn ættu virkilega að leyfa sér að hugsa þessa hugsun, ekki segja nei alveg eins og skot út af einhverri fælni, leyfa sér að hugsa þessa hugsun. Þarna gæti verið von til þess að minnka ríkisábyrgð, bæta 400 milljörðum inn í ríkissjóð til að borga niður skuldir og minnka skuldsetningu ríkissjóðs. Ef vel tekst til með að vinna úr snjóhengjunni, sem ég bind vonir við að allur þingheimur standi að og þarf að gera, og ef þetta kæmi til viðbótar, verður Ísland minnst skuldsetta ríkisvaldið í Vestur-Evrópu, vegna þess að það munar um 400 milljarða og það munar um ríkisábyrgðirnar.
Nú er ræðutími minn að verða búinn og við eigum eftir að ræða um Íbúðalánasjóð og ég hef ekki séð neinar lausnir á því sviði. Það verða að koma lausnir, það bara er þannig, við verðum að leysa það og ég er með ákveðnar lausnir í huga. Þær eru kannski ekkert voðalega þægilegar en einhvern veginn verðum við að taka á vandanum vegna þess að mér sýnist að vextir haldi áfram að lækka. Það er vegna þess að það vantar framkvæmdir á Íslandi, það vantar framkvæmdir á Íslandi til að halda uppi vaxtastiginu. Ef mikið er af gullnum tækifærum í framkvæmdum í auðlindum okkar, sjávarútvegi og orkunni þá hækka vextir, þá þarf nefnilega meira fjármagn. Þá hækka vextir og þá lagast staða Íbúðalánasjóðs af sjálfu sér, ekki staða heimilanna endilega en heimilin búa nefnilega, merkilegt nokk, við mjög háa vexti, ég var að kíkja á það í dag, búa enn við 3,9% vexti hjá sjóðsfélagalánum lífeyrissjóðanna, þeir sem eru með fasta vexti. Lífeyrissjóður verslunarmanna er með 2,8% breytilega vexti, en Íbúðalánasjóður er enn með 4,9% sem eru óskaplega háir vextir.
Ef hér færi allt í gang, ef það tækist, ef til dæmis kæmi ný ríkisstjórn sem Sjálfstæðisflokkurinn ætti hlut að eftir næstu kosningar og menn hefðu kjark til að fara í breytingar af þessu tagi og breytingar á skattkerfinu og laga stefnu í efnahagsmálum sem ég vil gjarnan vinna að, þá getur komið hugur í menn og menn fara að framkvæma. Þá hækka raunvextirnir kannski aftur upp í 3% eða 4% og lífeyrissjóðirnir standast aftur skuldbindingar sínar, fá sína viðmiðunarvexti. Vandi Íbúðalánasjóðs hverfur, af því að vandi Íbúðalánasjóðs er vegna lækkandi vaxta á markaði. Og við fengjum framkvæmdir um allar koppagrundir, eitthvað sem þjóðin þarf, mikla vinnu, nóg að gera og allir geta borgað bleiur á börnin sín, brauð handa börnunum og mjólk og borgað af lánunum sínum. Vandi íslenskra heimila er aðallega greiðsluvandi og hann stafar af því að menn hafa bara ekki nóga vinnu, hafa ekki nógu miklar tekjur.
Til þess að fá tekjur verðum við að auka fjárfestingar og eitt af því gæti verið að einkavæða Landsvirkjun í pörtum eða tímabundið, ég veit ekki hvað á að kalla þetta, því að um leið og einkaaðilar eru komnir að þessum fyrirtækjum í orkugeiranum fer hugmyndaflugið í gang og menn sjá alls konar leiðir, vindmyllur eða hvað það nú er, og framkvæma strax. Það vill svo til að einkaaðilar eru miklu hraðari í ákvörðunartöku og þurfa ekki að taka tillit til alls konar pólitískra sjónarmiða eins og þess að byggingarreglugerð sé breytt þannig að ekki er hægt að byggja íbúðir handa fólki, þær eru orðnar svo dýrar. Eða þá að ekki má virkja út af þessu og hinu, einhverjum pólitískum sjónarmiðum. Og einhver einn þingmaður segir: Ég styð ekki ríkisstjórnina nema hætt verði við að virkja neðri hluta Þjórsár. Og þar með bara situr það, ein hagkvæmasta virkjun sem til er, af því að verið er að nýta jöfnunina alla leiðina niður Þjórsá. Þarna er sko ekki um ósnortin víðerni að ræða, þarna eru gróin tún og vegir og svoleiðis, þannig að það er aldeilis búið að snerta þá náttúru sem þar er, hún er mikið snert og spurning hvort það séu ekki líka náttúruspjöll.
Nú er ræðutíma mínum lokið og ég ætla þá að koma aftur, frú forseti, og ræða um vanda Íbúðalánasjóðs, hvað hægt er að gera þar ef ekki tekst að hækka vexti í landinu þannig að hann þoli vaxtalækkunina eða að hún gangi til baka. Hvað við getum gert ef það er ekki hægt. En ég vil endilega að menn fari að huga að því á öllum sviðum: Ekki ríkisábyrgð, bara ekki ríkisábyrgð.