fjárlög 2013.
Herra forseti. Ég vona að við getum haldið áfram þeirri uppbyggilegu umræðu sem hér hefur verið í allan dag og í gær og verður vonandi langt fram eftir nóttu. (Gripið fram í.)
Hér gerði hv. þm. Illugi Gunnarsson þá athugasemd að það væru ekki nefndir þingsins sem réðu dagskrá. Það er mikið rétt. Fjárlagaumræðan í vetur er undantekning þar á. Og ég er komin í þennan ræðustól til að minna hv. þingmann á að þegar við hófum 1. umr. fjárlaga hér í haust var það með gerbreyttu sniði. Hvers vegna var það? Það var vegna þess að þessi umræða hefur oft og tíðum ekki verið nægilega upplýsandi eða góð. Og hvaðan kom það frumkvæði? Það kom frá hv. fjárlaganefnd sem var sammála og einróma og lagði til hvernig umræðunni skyldi háttað. Það var farið eftir því við 1. umr. Það kom tillaga frá nefndinni um (Forseti hringir.) 2. umr. og nú hlaupast menn brott undan eigin orðum. Það er miður.