fjárlög 2013.
Virðulegi forseti. Þetta ætti að vera á hreinu. Það getur vel verið að það sé gert alls konar samkomulag en það tekur ekki gildi fyrr en þingflokksformenn ásamt forseta hafa tekið ákvörðun þar um. Það var gert um meðferð málsins við 1. umr. en ekkert samkomulag hefur legið fyrir um það hvenær þessari umræðu lyki.
Ég vildi segja hitt, svo ég ljúki varðandi um hv. þm. Lúðvík Geirsson, að ég verð að segja eins og er að þetta er hálfdapurlegur endir á ferli hans í þinginu. Ég hafði heilmiklar væntingar til þingmannsins um hvernig hann mundi standa hér að málum. En svo bregðast krosstré sem önnur tré (Gripið fram í.) og sennilega verður þingmaðurinn að búa við það að það verði nokkuð lagt út af og lagt mat á framgöngu hans í þinginu í kjölfar þessa fordæmislausa (Forseti hringir.) atviks hér. Meira hef ég ekki við þennan hv. þingmann að ræða.