141. löggjafarþing — 43. fundur,  1. des. 2012.

um fundarstjórn.

[00:46]
Horfa

Lúðvík Geirsson (Sf):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Illugi Gunnarsson hefur lýst því yfir að sér hafi verið misboðið vegna mótmæla minna sem áttu sér stað undir ræðu hans hér fyrr í kvöld. Sá gjörningur beindist á engan hátt gegn hv. þingmanni né neinum öðrum þingmanni persónulega.

Mér er ljúft og skylt að biðja hv. þingmann og þingheim afsökunar og ég vænti þess að þingstörf geti gengið eðlilega fyrir sig eins og ósk okkar allra er.