141. löggjafarþing — 44. fundur,  3. des. 2012.

undirbúningur olíuleitar.

[15:16]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á að fagna því sérstaklega að út eru komin sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu eins og meðal annars kom fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Ég held að þetta sé afar mikilvægt skref.

Það er líka mikilvægt að hið opinbera skapi umgerð í þessum málum, sérstaklega í olíuleitarmálunum, þar sem fyrirtæki og fjárfestar geti til lengri tíma horft til framtíðar varðandi áætlunargerð. En við sjálfstæðismenn höfum alltaf lagt á það áherslu að mörg og mikil tækifæri felist í gas- og olíuvinnslu innan íslenskrar lögsögu sem hefur reyndar verið markvisst unnið að á umliðnum 10 árum. En það verður auðvitað að umgangast auðlindirnar okkar af mikilli varfærni og skynsemi ekki síst með langtímahagsmuni að leiðarljósi.

Mig langar að beina sjónum aðeins að umsögn frá umhverfisráðuneyti. Í október sagði ráðuneytið að enda þótt lagaleg umgjörð hefði verið sett og ítarlegar leiðbeiningar séu í skýrslu um olíuleit á Drekasvæðinu fari því fjarri að stjórnsýslan og þjóðfélagið séu vel undirbúin fyrir mögulega olíuvinnslu á svæðinu. Slíkur undirbúningur þurfi að vera fullnægjandi þegar rannsóknarboranir hefjast. Þetta var sagt í október og ég held að þetta séu nokkuð sönn og rétt orð.

Ég spyr hæstv. ráðherra nú þegar þetta mikilvæga skref hefur verið stigið: Er búið að uppfylla þessi sjónarmið sem komu fram af hálfu umhverfisráðuneytisins? Hvað hefur nákvæmlega verið gert til að undirbúa málið af hálfu stjórnsýslunnar annars vegar og hins vegar úti í þjóðfélaginu?