141. löggjafarþing — 45. fundur,  4. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[01:19]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni, það er best að halda því til haga, að vissulega kemur fram í fjárlagafrumvarpinu að það er ákveðin óvissa. Ef það hefur skilist þannig af minni ræðu að ég hafi sagt að svo væri ekki er það misskilningur, það er rétt að það komi fram.

Varðandi arð frá Landsbankanum, svo dæmi sé tekið, hljótum við að velta því fyrir okkur hvort rétt sé að taka þann arð til að standa undir fjárfestingum, hvort eigi að taka hann til að greiða niður skuldir ríkissjóðs og ef rekstur bankans gengur svona svakalega vel hvort hann á ekki bara að bjóða viðskiptavinum sínum betri kjör. Það er hægt að fara í ýmsar vangaveltur með það. Hér er farin sú leið að taka arðinn til að standa undir fjárfestingum, í það minnsta á hluti af honum að fara í það.

Ég held að það sé skynsamlegt að gera fjárfestingaráætlun en ég hefði viljað að menn væru þá að gera áætlun sem væri meira í þá áttina að reyna að tryggja aukinn hagvöxt eða tekjur í framtíðinni, meira í það að búa til tekjur. Það er ýmislegt sem hægt er að rökstyðja að búi til tekjur. Það má til dæmis velta fyrir sér hvort hefði verið rétt, þótt það mundi kannski ekki fara akkúrat undir fjárfestingaráætlun, að létta á þeirri þröng sem margar menntastofnanir eru í. Ég nefni nú til dæmis háskólann í því ágæta kjördæmi sem ég er. Við vitum öll að það er ákveðinn vandi, svo sem ekki fjárfesting en það mundi kannski gera það að verkum að menn gætu framleitt meira af nemendum eða útskrifað nemendur svoleiðis.

Ég tek undir með hv. þingmanni, það er skynsamlegt að gera fjárfestingaráætlun þótt ég sé ekki endilega sammála þeim verkefnum sem þarna eru.