141. löggjafarþing — 46. fundur,  4. des. 2012.

lengd þingfundar.

[13:30]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfundar, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? (Gripið fram í: Já.) — Forseti gerir þá ráð fyrir að atkvæðagreiðsla um tillögu forseta fari fram að loknum umræðum um störf þingsins.