fjárlög 2013.
Virðulegur forseti. Ég hef verið að bíða eftir því að komast í það að gera nokkrar athugasemdir við fjárlagafrumvarpið sem hér er til umræðu og hefði helst viljað ræða það frumvarp að degi til en einhvern veginn hefur það atvikast þannig að maður er látinn ræða þetta á kvöldin. En þó að ég sé orðinn óþreyjufullur að komast í það get ég ekki látið hjá líða að gera athugasemdir við málflutning hv. þm. Unnar Brár Konráðsdóttur. Enn örlar á — og örlar ekki bara á heldur birtast þessir fordómar sjálfstæðismanna í garð Íbúðalánasjóðs í málflutningi hv. þingmanns.
Hv. þingmaður hélt því fram að allir vildu gera breytingar, úrbætur á Íbúðalánasjóði nema framsóknarmenn. Ég held að það sé alveg óhætt að segja að framsóknarmenn eins og aðrir vilja gjarnan bæta Íbúðalánasjóð og stöðu hans, en ef hv. þingmaður er að boða það að nánast eigi að loka Íbúðalánasjóði eða fela honum eitthvert smávægilegt félagslegt hlutverk þar sem hann komi einungis til móts við t.d. fólk sem geti ekki fengið lán í bönkunum held ég að það sé mjög hættuleg umræða. Þá er verið að skipta fólki í hópa, þá sem eru ásættanlegir viðskiptavinir bankanna og þá sem eiga að vera hjá Íbúðalánasjóði.
Hvernig á að skilgreina fólk þannig, hverjir megi vera viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs? Ég held að það sé nefnilega mjög mikilvægt að þeir sem vilja vera í viðskiptum við Íbúðalánasjóð hafi kost á því. Auðvitað nýtist það almenningi í landinu ef ríkið stendur það vel að það geti fjármagnað sig á þokkalegum kjörum, sem vonandi verður raunin áður en allt of langt um líður. Ríkið geti þá nýtt þau kjör til þess að almenningur fái lán til fasteignakaupa á sæmilegum kjörum líka. Það hefur bara sýnt sig að ekki er hægt að treysta á bankana eina í þessu efni, ég tala nú ekki um á landsbyggðinni sem þeir hafa algjörlega vanrækt og raunar gengið fram (Forseti hringir.) með mjög óeðlilegum hætti þar sem þeir oft á tíðum neita að lána til íbúðakaupa á landsbyggðinni.