ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Stutta svarið við spurningunni um hvort komið hafi sundurliðun í nefndina frá fjármálaráðuneytinu er: Nei, það kom ekki. Þau svör sem við fengum voru ekki í samræmi við svör þeirra sem komu á staðinn og kynntu sitt mál. Ég spurði hæstv. forsætisráðherra um þetta í dag og öllum var ljóst að hæstv. forsætisráðherra hafði ekki einu sinni velt þessu fyrir sér.
Ég lít hins vegar svo á að við eigum bandamann í hæstv. fjármálaráðherra sem hefur tekið þessu öðruvísi í umræðunni. Við skulum ekki dvelja við það sem liðið er. Þetta er ekki tilbúið, það er ekki búið að undirbúa þetta. Þessar upplýsingar liggja ekki fyrir þannig að hv. efnahags- og viðskiptanefnd verður að fara í það og það hlýtur að vera eitt af stóru málunum.
Hv. þingmaður spyr: Getum við gert ráð fyrir þessari fjölgun varðandi ferðaþjónustuna og bílaleigubílana? Nei, við getum það ekki. Og yfirlýsingar ráðherranna einar og sér um hækkun hafa gert það að verkum að bókunum hefur fækkað um 15% hjá stærstu hótelkeðjunni miðað við sama tíma í fyrra, ekki fjölgað. Síðan erum við búin að missa ráðstefnur, ég nefndi það hér, það er búið að missa eina þúsund manna ráðstefnu til Dubai. Risastór ráðstefna sem átti að vera í Hörpu fór til Barcelona og þetta er bara það sem við fengum að vita frá þessum þrem aðilum sem mættu í dag. Nú þegar erum við búin að færa störf frá Íslandi til annarra landa.
Ferðaþjónustan býr við þá sérstöðu hér að þetta er mjög stuttur tími og þess vegna er til dæmis dýrt að halda úti bílaleigum. Það hafa verið þokkalega nýir bílar fram til þessa en það mun augljóslega breytast. (Forseti hringir.) Það mun meðal annars hafa áhrif í umhverfismálum svo ekki sé minnst á ýmislegt annað.