141. löggjafarþing — 47. fundur,  5. des. 2012.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

468. mál
[20:53]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegi forseti. Við ræðum eitt af tekjuöflunarfrumvörpum ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna, fyrstu hreinu vinstri stjórnarinnar sem svo er gjarnan kölluð og þreytast stjórnarliðar ekki á að minna á að þetta sé hrein vinstri stjórn. Ég veit ekki hvernig aðrar vinstri stjórnir eru þá ef þessi er hrein og það er kannski ekkert sem kemur á óvart í því máli sem við ræðum, þ.e. ráðstafanir í ríkisfjármálum. Þetta er sama stefnan sem hefur verið við lýði frá því að þeir flokkar tóku við stjórninni, þ.e. leitað er í alla króka og kima til að hækka gjöld og hækka skatta, leggja meiri álögur á fyrirtæki og heimili, þ.e. þá sem eiga bara að borga fyrir það sem ríkissjóður þarf að hafa.

Því miður er það mat mitt að allur metnaður til að auka tekjur ríkissjóðs er enginn. Mér sýnist á öllu að enn og aftur sé lítið um hugmyndaauðgi eða skapandi hugsun, eins og einn ráðherra stjórnarliðsins hefur gjarnan talað um í þessum ræðustól, þá er því ekki fyrir að fara.

Það er svo sem hægt að fara yfir margt í frumvarpinu, margt sem varað hefur verið við og bent hefur verið á að geti haft önnur áhrif en hér er fjallað um. Fram kom hjá síðasta hv. ræðumanni að væntanlega gerðu menn sér ekki grein fyrir hvaða afleiðingar þessar breytingar hefðu en það er alla vega ekki hægt að segja að við þeim hafi ekki verið varað. Þingmenn hafa varað við áhrifum af því að fara þessa leið og eins hagsmunaaðilar sem starfa úti á akrinum, ef má orða það svo, og nægir þar að nefna ferðaþjónustuna.

Það er annað sem ég vil taka fram strax og vakti undrun mína þegar ég las frumvarpið. Svo virðist vera að lítil tilraun hafi verið gerð til þess að meta áhrif þeirra breytinga sem verið er að gera á heimilin í landinu og skuldir heimilanna. Það er algerlega augljóst og kristaltært að ákveðnar breytingar í frumvarpinu munu enda á húsnæðislánum heimilanna, munu hækka þau og halda áfram að auka á þann vanda sem er þar. Ekki höfum við séð tillögur frá stjórnarflokkunum um hvernig hægt er að minnka þann vanda sem heimilin glíma við vegna skuldsetningar.

Rætt er um bætt skattskil og auðvitað er það afar mikilvægt að við reynum að bæta skattskilin eins mikið og við getum, en þetta er að sjálfsögðu mjög óviss liður, þ.e. við vitum ekki hversu mikið hægt er að bæta þau. Þó er gert ráð fyrir því í fjárlagafrumvarpinu að skattrannsóknarstjóri fái auknar heimildir, ég man reyndar ekki töluna, til að fjölga starfsfólki og bæta úr. Ég held að þarna sé hægt að gera töluvert meira til að leita að þeim aðilum sem eiga að standa betur skil á sköttum sínum og gjöldum til ríkisins. Nægir að horfa til upplýsinga sem hafa komið fram varðandi ferðaþjónustuna um hversu mikið af gistirými er auglýst á höfuðborgarsvæðinu sem ekki er skráð sem gistirými og virðist ekki allt vera þar á hreinu.

Síðan er talað um gjöld á olíu og tóbak, bensíngjald og slíkt. Það eru að sjálfsögðu hækkanir sem enda í húsnæðislánunum okkar, verðtryggðu lánunum sem ekki hefur verið vilji til að takast á við af hálfu stjórnarflokkanna. Vinstri stjórnin hefur þverskallast við að taka til greina eða hlusta á þær tillögur sem hafa komið fram um mögulegar leiðir til að aftengja í áföngum verðtrygginguna, setja á hana þak og lækka. Það eru tillögur sem þingmenn Framsóknarflokksins hafa lagt til nokkuð oft á Alþingi, beinar tillögur um leiðir til að setja þak á verðtrygginguna. Það er sorglegt að ekki skuli hafa verið betur tekið í þær vegna mikilvægis málsins og hvernig menn tala almennt.

Síðan er það ferðaþjónustan og hækkun á virðisaukanum á gistingu. Í staðinn fyrir að hækka hann úr 7% í 25,5% er reynt að fara millileið og fara í 14%. Þetta er algerlega kolröng nálgun. Það á vitanlega að draga það algerlega til baka og segja við aðila í ferðaþjónustu að það hafi verið misráðið að fara af stað með þessum hætti, biðjast afsökunar á því hvernig þetta hefur farið með bókanir og skapað óvissu í greininni. Og óska frekar eftir því að sest verði niður og leiðir fundnar til að ferðaþjónustan geti lagt meira í ríkissjóð í framtíðinni, unnið sem sagt með umræddum aðilum, en ekki að koma fram með hugmyndir sem þessar og skella þeim fram.

Við höfum séð aðila í ferðaþjónustu vara mjög við þessari leið og hafa þeir gjarnan fært rök fyrir því að hægt sé að ná auknum tekjum í ríkissjóð með því að fara aðrar leiðir en hækka álögur. Einn af þeim er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, Árni Gunnarsson. Hann flutti fyrir nokkru, í nóvember, erindi um hvernig auka má arðsemi ferðaþjónustunnar eða tekjur samfélagsins af ferðaþjónustunni án þess að hækka skattana. Það sem er áhugavert og kemur fram í erindinu, við sjáum það líka í skýringum með frumvarpinu, er að skatttekjur af ferðaþjónustunni hafa hækkað gríðarlega mikið á nokkrum árum. Á fjórum árum hafa þær farið úr 13 milljörðum í 17 milljarða, þ.e. af opinberri vöru og þjónustu við erlenda ferðamenn. Það eru engar smátölur þegar við sjáum hver áhrifin í raun og veru eru. Þarna mætti örugglega ná meiru inn með því að vanda sig og með því að markaðssetja meira og betur og selja ákveðna hluti kannski dýrar þegar menn eru komnir til landsins.

Að þessu sögðu vil ég nefna eitt sem minnst er á í frumvarpinu, svokallaður náttúrupassi. Ég held að það sé prýðishugmynd og eigi að vinna áfram með það hvort hægt sé að koma upp þeim náttúrupassa. Ég verð að viðurkenna, frú forseti, að ég geri mér ekki alveg grein fyrir hversu verðmætur slíkur passi gæti orðið eða hversu mikið megi rukka fyrir hann. Mér finnst skynsamlegt að reyna að draga ferðamenn til landsins og reyna þegar þeir eru komnir til landsins að fá þá til að eyða meiru eða ná af þeim meiri peningum inn í samfélagið. Ef við hugsum okkur að slíkur passi mundi kosta 5 þús. kr. og helmingur ferðamanna sem hingað kæmu mundi kaupa hann þá mundi slíkt vera um 1,5 milljarðar. Ég tek fram að ég geri mér enga grein fyrir hvað svona lagað gæti kostað en tölurnar eru á þessu róli. Það er ýmislegt hægt að gera.

Einnig kom fram í erindi Árna Gunnarssonar að skattahækkanir sem boðaðar eru á atvinnugreinina gætu á endanum leitt til minni tekna og er þá vitanlega mjög undarlegt að fara af stað í slíkan leiðangur, ef hægt er að leiða líkur að því.

Annað sem maður hefur miklar áhyggjur af er að víða um land, hér á höfuðborgarsvæðinu og úti á landsbyggðina líka, hafa aðilar verið að reyna að fjárfesta og auka hagkvæmni í rekstri sínum og fjölga gistirýmum en nú er staðan sú að margir þeirra eru stopp hreinlega. Þeir fá ekki fyrirgreiðslu vegna þeirrar óvissu sem þessi breyting hefur haft í för með sér og vegna þess að áætlanir þeirra um tekjur og útgjöld í framkvæmdir ganga ekki upp eftir hækkun. Það fer of mikið af veltu eða því sem verður eftir hjá fyrirtækjunum í skatta og gjöld til ríkisins. Og getur örugglega hver einasti þingmaður talið upp nokkur dæmi um slíkt þar sem áætlunum eða plönum er slegið á frest vegna þeirrar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að fara í slíkar æfingar með virðisauka.

Ég get ekki sleppt því fyrst ég er að tala um ferðaþjónustuna að minnast á eitt, af því að menn hafa verið að gagnrýna óábyrgt tal hér undanfarið í fjölmiðlum, þ.e. þegar hæstv. fyrrverandi fjármálaráðherra sagði að ferðaþjónustan væri niðurgreidd atvinnugrein. Það er alveg stórfurðulegt að henda slíku fram og í raun afar óheppilegt enda særði það marga að tala um slíkt. Ferðaþjónustan skapar 9 þús. störf í það minnsta, sem er mjög mikilvægt, og áætlanir um uppbyggingu hefðu væntanlega kallað á einhverja fjölgun. Því miður hefur mörgu af því verður slegið á frest.

Ég nefndi að bæði höfuðborg og landsbyggð ætluðu sér að fjölga gistirýmum eða fara í fjárfestingar. Ég vil í því sambandi nefna þá hugmynd að fella niður afslátt eða undanþágur frá gjöldum sem bílaleigur hafa haft, það er einnig mjög misráðið að mínu viti. Ég held að þarna sé verið að skjóta sig alvarlega í fótinn vegna þess að þeir aðilar munu sjálfsagt þurfa að bregðast við með einhverjum hætti. Þetta mun leiða til aukins kostnaðar, hærra innkaupsverðs á bílum þeirra og mun væntanlega og örugglega hafa einnig áhrif á almenna endursölu á bílamarkaði vegna þess að bílaleigurnar hafa verið býsna umfangsmiklar þegar kemur að endurnýjun á bílaflotanum. Það hefur komið fram í upplýsingum frá bílaleigunefnd þeirri er starfar innan Samtaka ferðaþjónustu að meðalútleiguverð á bílaleigubíl þyrfti að hækka að jafnaði um 27%. Jafnvel er talið að bílaleigurnar muni þurfa að taka upp kílómetragjald til að standa undir þeim aukna kostnaði. Hvaða áhrif mun það hafa? Það mun vitanlega hafa þau áhrif að þeir sem eru með bílaleigubíla munu keyra minna því það kostar þá að keyra hvern kílómetra og þá er veruleg hætta á því að ferðaþjónusta sem rekin er í mikilli fjarlægð frá höfuðborginni úti á landi getur orðið fyrir verulegu tapi eða sambærilegum samdrætti vegna þess að þeir sem leigja bílinn á Keflavíkurflugvelli eða í Reykjavík munu væntanlega fara í næsta nágrenni út af auknum kostnaði.

Þeir sem reka bílaleigur hafa líka fært rök fyrir því að þetta geti leitt til 300 millj. kr. tekjutaps fyrir ríkissjóð. Og enn komum við þá að því hvort ekki sé mikilvægt fyrir ríkisvaldið að setjast niður með þeim aðilum og sjá hvort það geti virkilega verið að slík breyting geti leitt til þess að svona fari, sem yrði að mínu viti afar undarlegt ef af yrði.

Svört atvinnustarfsemi er mál sem þarf að taka á og mun ég fjalla um það aðeins betur síðar. En það er líka ágætt að hafa í huga að þær breytingar sem áður hafa verið gerðar á rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar hafa haft mikil áhrif og nægir að nefna upplýsingar sem framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands benti á að á árinu 2009 greiddi félagið 200 millj. kr. í ýmis gjöld, skatta á ferðaþjónustuna og þess háttar, en á árinu 2012 stefnir í að það verði einar 400 millj. kr. Á þessum tveimur árum hefur það hækkað um helming.

Frú forseti. Tími minn er búinn. Ég óska eftir því að verða settur aftur á mælendaskrá í seinni ræðu til að geta lokið þessari umfjöllun.