141. löggjafarþing — 47. fundur,  5. des. 2012.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

468. mál
[21:08]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Frumvarpið sem hér liggur fyrir um ráðstafanir í ríkisfjármálum hefur fengið örlitla umræðu í tengslum við fjárlagaumræðu, enda er þetta frumvarp sem gengur út á að færa í lög ýmsar af þeim breytingum sem nauðsynlegar eru til að tillögur fjárlagafrumvarpsins eins og það stendur nú gangi upp. Frumvarpið er auðvitað margbrotið, eins og fram hefur komið í þessari umræðu. Eins og gjarnt er um frumvörp af þessu tagi er safnað saman ákvæðum úr hinum og þessum lagabálkum, bæði mismunandi skattalagaákvæðum og fleiri ákvæðum sem varða tekjur og gjöld ríkisins.

Ég ætla í þessari stuttu ræðu við upphaf málsmeðferðar ekki að fara nákvæmlega út í einstaka þætti heldur einbeita mér að örfáum meginatriðum. Ég vil geta þess í upphafi að eins og gengur þá eru ákvæði í þessu frumvarpi sem taka má undir. Ekki mörg en þetta er hins vegar ekki alslæmt frumvarp, þannig að það sé sagt hér við upphaf umræðunnar. Það er ekki alslæmt. Það eru ákveðnar breytingar lagðar til í þessu frumvarpi sem má fallast á og lýsa stuðningi við.

Það lýsir því hversu fjölbreytt frumvarpið er og eins og löngum þegar frumvarp af þessu tagi kemur fram þá er umhugsunarefni hvort æskilegt sé að blanda saman í eitt frumvarp ákvæðum sem taka til svo margvíslegra og margbreytilegra lagaákvæða eins og hér um ræðir. Gallinn við það er sá að ákveðin hætta er á að einstaka breytingar fái ekki næga skoðun eða næga athygli í meðförum málsins. Að umfjöllun á vettvangi þingsins og í nefnd beinist fyrst og fremst að tilteknum fáum meginatriðum en önnur atriði, sem hvert um sig geta skipt töluvert miklu máli, gleymast eða lenda einhvern veginn til hliðar í umfjölluninni. Það er auðvitað ekki æskilegt.

Þrátt fyrir ákveðin ákvæði sem telja má jákvæð og taka ber undir þá er meginstefna þessa frumvarps það sem kallað er tekjuöflunaraðgerðir fyrir ríkissjóð, sem er bara annað nafn á skattheimtu eða skattahækkunum. Það eru þeir þættir frumvarpsins sem ég tel helst ástæðu til að staldra við. Með þessu frumvarpi er ríkisstjórnin að stíga enn eitt skrefið í þá átt að auka skattheimtu, hækka skatthlutföll, breyta tímabundnum sköttum í varanlega skatta og svo má lengi telja.

Hefði nú ýmsum þótt að hæstv. núverandi ríkisstjórn væri búin að ganga nægilega langt í þessum efnum. Á hverju einasta ári, að minnsta kosti fyrir hver einustu jól frá því þessi ríkisstjórn tók við völdum og raunar oftar ef horft er á nokkur frumvörp sem afgreidd hafa verið á vor- eða sumarþingum, þá hefur þessi ríkisstjórn komið með skattahækkunarpakka. Þeir hafa leitt af sér auknar álögur á borgarana í landinu og eins og í þessu frumvarpi fyrst og fremst á atvinnulífið í landinu.

Aðrir hv. þingmenn hafa fjallað um skattahækkunina sem hér er boðuð á ferðaþjónustuna. Ég ætla ekki að staldra lengi við hana. Ég vil bara taka fram að þrátt fyrir að áformin sem birtast í þessu frumvarpi séu ekki um jafngríðarlega hækkun á sköttum, á virðisaukaskatti á útleigu gistiheimila og hótelherbergja og síðan vörugjöld á bílaleigur, eins og sú sem var boðuð með yfirlýsingum fyrrv. hæstv. fjármálaráðherra Oddnýjar Harðardóttur í sumar og haust — sem á þeim tíma virtist njóta fulls stuðnings innan ríkisstjórnarinnar og ríkisstjórnarflokkanna. Jafnvel þó að hér sé ekki gengið jafn rosalega langt og stefnan var þá, þá er engu að síður um verulegar hækkanir að ræða. Hækkanir sem hljóta að koma niður á þessari atvinnugrein sem hefur sem betur fer verið í nokkrum vexti og mikilli sókn.

Erlendum ferðamönnum hefur fjölgað hér á undanförnum árum eins og við þekkjum og það hefur átt sér stað töluverð uppbygging á þessu sviði, sem betur fer. En þá, eins og oft áður, eru viðbrögð ríkisstjórnarinnar þau að reyna að kreista meira út úr greininni með skattahækkunum. Það er óæskilegt og það skapar greininni ekki góða stöðu, ekki síst í ljósi þess fyrirvara sem var á breytingunum sem hér voru ákveðnar.

Ég vil taka það fram að núverandi hæstv. fjármálaráðherra Katrín Júlíusdóttir hefur sýnt ferðaþjónustunni meiri skilning í umræðum um þessi mál en forveri hennar og margir innan ríkisstjórnarflokkanna og ber að virða það við hæstv. fjármálaráðherra.

Samkvæmt þessum tillögum er engu að síður um að ræða verulegar hækkanir sem hafa auðvitað áhrif á starfsumhverfi og rekstrarumhverfi þessarar greinar. Nóg um það.

Í frumvarpinu eru líka ákvæði sem snerta tryggingagjald sem lagt er á alla launagreiðendur. Þar er rétt að halda því til haga, eins og aðrir hafa nefnt hér í umræðunni, að eftir kjarasamningana 2011 var stefnt að því að lækka atvinnutryggingagjald með minnkandi atvinnuleysi. Eitt af fyrirheitum ríkisstjórnarinnar gagnvart aðilum vinnumarkaðarins þegar gengið var frá kjarasamningum var að atvinnutryggingagjald yrði lækkað.

Nú er það gert og það er jákvætt skref ef horft er á þá grein einstaka og án samhengis við nokkuð annað. Það er hins vegar svo einkennilega staðið að verki af hálfu ríkisstjórnarinnar að í staðinn fyrir að lækkunin á atvinnutryggingagjaldinu komi að fullu fram í lægri álögum á launagreiðendur þá er megnið, sennilega um 2/3, af lækkuninni tekið til baka í gegnum hækkun hins almenna tryggingagjalds. Að þessu leyti má segja að ríkisstjórnin sé aðeins að efna fyrirheitið gagnvart aðilum vinnumarkaðarins upp á u.þ.b. 1/3. Það er mikill minni hluti þeirrar lækkunar sem aðilar vinnumarkaðarins gátu gert sér vonir um sem mun raunverulega skila sér til þeirra. Ráðherrar hæstv. ríkisstjórnar hafa farið í hártoganir um að þeir hafi bara sagt: Við ætluðum að lækka atvinnutryggingagjaldið, við lofuðum aldrei að hækka ekki tryggingagjaldið á móti. En ég held að allir hljóti að sjá hvers konar hártoganir það eru og hve lélegur rökstuðningur fyrir svona breytingum það er.

Nái sú breyting sem hér er lögð til á almenna tryggingagjaldinu fram að ganga þá eru teknir til baka u.þ.b. 2/3 hlutar af lækkuninni á atvinnutryggingagjaldinu. Ríkisvaldið er þá að efna mikinn minni hluta af samkomulagi sínu og fyrirheitum sínum til aðila vinnumarkaðarins, í mesta lagi 1/3 af því sem lofað var. Það er auðvitað betra en að gera ekki neitt en það er sérkennilegt ef aðilar vinnumarkaðarins, eða eftir atvikum aðrir aðilar í samfélaginu, geti gert sér vonir um að undirritaðar yfirlýsingar frá ríkisstjórn landsins komi bara til efnda að einhverjum litlum hluta. Að ríkisstjórnin gefi yfirlýsingar um að hún ætli að gera eitthvað, standi við kannski 1/4 eða 1/3 af því sem hún lofar að hún ætli að gera og telji sig þar með vera búna að efna samkomulagið. Það er sérkennilegt og þessu hefur auðvitað verið mótmælt og verður mótmælt áfram.

Tryggingagjaldið er dálítið sérstakur skattur vegna þess að það leggst á launagreiðslur alveg óháð afkomu fyrirtækjanna sem um er að ræða. Há tryggingagjöld gera það dýrara fyrir fyrirtæki að hafa fólk í vinnu og há tryggingagjöld vinna þannig gegn markmiðinu sem ég hefði haldið að væri sameiginlegt markmið okkar allra, að auðvelda fyrirtækjum að ráða til sín fólk til þess að bæta atvinnuástandið í landinu. Á þeim forsendum andmælti ég og við sjálfstæðismenn hækkun tryggingagjaldsins á sínum tíma og á sömu forsendum hljótum við að harma það að ríkisstjórnin standi ekki við fyrirheit sín í þessum efnum, nú þegar komið er að efndum.

Hæstv. forseti. Fleiri atriði eru inni í þessu, ég nefndi í upphafi að verið er að gera tímabundna skatta varanlega og vekur það auðvitað töluverða umhugsun um hve mikið er að marka suma stjórnmálamenn þegar þeir segja: Nú eru sérstakar aðstæður, einstaklega erfiðar aðstæður, þess vegna ætlum við að leggja á tímabundið gjald, tímabundinn skatt, en svo um leið og aðeins fer að batna þá munum við auðvitað láta það verða okkar fyrsta verk að afnema þennan skatt.

Sú er ekki reynslan og því miður er það ekki einskorðað við núverandi ríkisstjórn. Hún hefur hins vegar kannski gert meira af því á skömmum tíma að breyta forsendum með þessum hætti, það er að leggja á skatta á þeirri forsendu að þeir séu tímabundnir og framlengja þá svo. Annaðhvort með einhverjum sólarlagsákvæðum eða með því að gera skatta sem áttu að vera tímabundnir að varanlegum sköttum, eins og gert er í þessu tilviki til dæmis hvað varðar umhverfis- og auðlindaskatta. Það er umhugsunarefni að aðilar skuli þurfa að búa við að skattar og gjöld sem hafa veruleg áhrif á rekstur á viðkomandi sviðum séu sagðir vera tímabundnir og mönnum gefið til kynna að tímar muni batna, þetta sé eitthvert högg sem menn þurfi að taka á sig kannski í tvö, þrjú ár og svo að þeim tíma loknum þá losni menn við þessa gjaldtöku. Síðan þegar komið er að því að afnema gjöldin þá er annaðhvort framlengt um eitt ár, framlengt um tvö ár, framlengt um þrjú ár eða skatturinn einfaldlega gerður varanlegur.

Þetta er af sama toga og það sem nefnt var áðan. Svo virðist vera að í hvert skipti sem núverandi ríkisstjórn hefur gert samkomulag eða gefið fyrirheit þá byrja menn að finna leiðir fram hjá efndunum um leið og yfirlýsingin hefur verið undirrituð eða gefin á opinberum vettvangi. Þá byrja menn að finna leiðir til þess að komast hjá því að efna loforðin eftir orðalagi þeirra. Þá byrja menn að finna einhverjar hjáleiðir eins og oft hefur komið fram í umræðum hér innan þings og líka í samskiptum við aðila vinnumarkaðarins og víðar. Sú er reynsla fólks af samskiptum við núverandi ríkisstjórn. Það er alveg sama hvort við tölum við samtök launafólks eða samtök atvinnurekenda, samtök aldraðra eða öryrkja, einstök fyrirtæki, jafnvel stjórnmálaflokka eða hópa hér á þingi.

Svo dæmi sé tekið, hver er reynsla Hreyfingarinnar af því að gera samkomulag við núverandi ríkisstjórn? Hreyfingin hefur ítrekað gert samninga um hitt og þetta við núverandi ríkisstjórn og hefur svo mátt sæta svikum, (Forseti hringir.) jafnvel samdægurs eða í sömu vikunni. Þetta er saga núverandi (Forseti hringir.) ríkisstjórnar varðandi þetta mál. Í þessu (Forseti hringir.) frumvarpi, hæstv. forseti, eru fjöldamörg atriði sem þarf að fara gaumgæfilega yfir en gefst ekki kostur á að ræða nánar hér. Ég skora á hv. nefnd að fara gaumgæfilega yfir þetta með gagnrýnum augum og reyna að draga eins og kostur (Forseti hringir.) er úr þeim skaðlegu áhrifum sem þetta frumvarp getur haft.

(Forseti (ÞBack): Forseti biður hv. þingmenn um að virða ræðutíma.)