lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Illuga Gunnarssyni, það er ekki ástæða til að vera með kvöldfund ef menn halda rétt og vel á spöðunum. Ég hef heldur ekki fengið nein svör frá forseta eða þeim er stýra þinginu um ástæðu eða þörf fyrir að halda hér kvöldfund. Það er nóg af þingdögum eftir af þessu þingi til að afgreiða þau mál sem liggja fyrir.
Við í stjórnarandstöðunni vitum svo sem ekki hvort það eru einhver önnur mál sem á að reyna að afgreiða, það kann að vera þess vegna sem á að halda þessa kvöldfundi. Ef ekki eru rök fyrir því mótmæli ég þessu, frú forseti.